Faðir tvítugrar konu sem fórst í hörmulegu flugslysi í Flórída í Bandaríkjunum fyrr í þessum mánuði segir að ýmsar spurningar hafi vaknað þegar hann hlustaði á síðustu samskipti dóttur sinnar við flugumferðarstjórn.Alls fórust níu manns þegar Learjet 60-einkaþota hrapaði á veg í grennd við West Palm Beach þann 1. nóvember síðastliðinn. Vélin var á leið frá Austin í Texas til Bahamaeyja þegar hún lenti í erfiðum veðurskilyrðum og missti skyndilega hæð.Meðal þeirra sem fórust var Nathalia Filgueiras, tvítugur aðstoðarflugmaður vélarinnar.
Faðir ungu flugkonunnar sem fórst í Flórída hlustaði á síðustu orð hennar – „Það var eins og hún væri ein“