Ferðatakmarkanir Bandaríkjaforseta leggja stein í götu afrískra fegurðardrottninga. Fulltrúar alls fimm Afríkuríkja gætu misst af keppninni um Ungfrú alheim því þær fá ekki vegabréfsáritun.
Keppnin í ár er haldin í Púertó Ríkó sem er hluti af Bandaríkjunum. Ungfrú Simbabve, Roseanna Hall, átti að fara þangað í byrjun vikunnar en greinir frá því á Instagram-síðu sinni að ekki hafi orðið af því vegna ferðatakmarkana sem Bandaríkin settu á landið hennar.
„Ég er ekki ein. Ég veit að nokkrar af afrískum systrum mínum hafa staðið frammi fyrir sömu áskorunum,“ segir Hall. Flestir keppendur eru þegar komnir til Púertó Ríkó.
Þeirra á meðal er íslenska söngkonan Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, betur þekkt sem Sigga Ózk.
Keppnin er sú 75. í röðinni og verður haldin 24. nóvember. Fulltrúar Sambíu, Kongó og Angóla hafa þegar hætt við keppni vegna ferðatakmarkana og ungfrú Suður-Súdan hefur ekki fengið vegabréfsáritun.
Donald Trump fyrirskipaði þessar ferðatakmarkanir með forsetatilskipun sem tók gildi 1. janúar. Til gamans má geta að Trump átti samtökin sem halda keppnina til ársins 2015.