Petra Rós Ólafsdóttir íbúi í Grindavík birti myndir af hjólhýsunum á íbúahópi Grindavíkur fyrir nokkrum dögum. Þá var málið rætt á íbúafundi Þórkötlu með Grindavík í gær. Þar sagði Örn Viðar Skúlason framkvæmdastjóri Þórkötlu að sér þætti málið leitt. „Þetta er ekki eins og við höfum lagt upp með og höfum farið yfir málið með viðkomandi,“ sagði Örn á fundinum í gær. Vísir hefur ekki náð tali af honum vegna þessa í dag.
„Við vorum í tilfinningarúnti í kringum húsið að skoða það við hjónin á laugardag fyrir um tveimur vikum og erum svo aðeins á vappinu í kringum húsið og sjáum að það er hjólhýsi í öðrum bílskúrnum. Við erum með tvo bílskúra á lóðinni og í hinum voru líklega tvö hjólhýsi,“ segir Petra í samtali við Vísi. Hún hafi flett upp bílnúmerinu og þannig komist að því að þarna væri starfsmaður Þórkötlu með hjólhýsi í geymslu.
„Samkvæmt lögum og reglum átti ég næsta aðgang að húsinu og Þórkatla á ekki að geta nýtt húsið án þess að spyrja mig um leyfi. Það sem stingur okkur er að við vorum látin taka hverju einustu spýtu úr húsinu og íbúar voru rukkaðir um förgunargjald ef það vildi geyma aukaísskáp og fleira á eigninni sinni og margir voru rukkaðir fyrir allskonar vitleysu.“
Petra segir að lögfræðingur þeirra hjóna hafi í kjölfarið sent Þórkötlu bréf með óskum um upplýsingar um það hvort það væru til afnotasamningar sem eigi við húsið. Hjónin séu ekki með hollvinasamning en eigi forkaupsrétt. Þau hafi fengið skrifleg svör frá Þórkötlu um að ferðavögnum hafi verið komið fyrir í bílskúr þeirra í óleyfi af starfsfólki fasteignafélagsins.
„Við fengum þessi svör á þriðjudaginn síðasta, síðan var fundurinn í gær miðvikudag. Framkvæmdastjórinn hringdi fyrst í manninn minn og bað hann afsökunar, hann hafði sagt honum að þetta væri starfsmenn í óleyfi, starfsmenn í fleirtölu og að hann hefði rætt málið við starfsmenn. Við höfum óskað eftir frekari upplýsingum, um verklagsreglur um aðgengi starfsfólks að eignum starfsfólks og erum að bíða eftir þeim, hvort þau geti valsað um eignirnar hvenær sem er eða hvernig þetta virkar.“
Hvað finnst þér um útskýringar forstjórans og að farið hafi verið yfir málið með viðkomandi, finnst þér það nóg?
„Ég svo sem ætla ekki að reka einhvern, en mér finnst þetta bara sérstakt, miðað við það að þetta er ríkisstofnun sem ber að fara eftir lögum en svo geta þeir bara gert það sem þeir dettur í hug.“
Horfa má á fundinn frá því í gær í heild sinni hér fyrir neðan.