Forsetinn fundaði í dag með þeim Jared Kushner og Steve Witkoff, sérstökum erindrekum Donalds Trump Bandaríkjaforseta, í um tvær klukkustundir í Kreml í dag, þar sem innrás Rússa í Úkraínu var til umræðu. Kushner og Witkoff hafa haft það hlutverk að reyna að binda enda á átökin fyrir hönd Trumps, með takmörkuðum árangri hingað til.
Þetta er í tíunda sinn sem Witkoff hittir Pútín persónulega. Síðast þegar hann fór til Moskvu vakti hann mikla athygli með því að kalla Pútín mikinn mannvin.
Sjá einnig: „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“
Fundurinn fylgdi á hæla fundar með erindrekum bæði Rússa og Úkraínumanna í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og eru Kushner og Witkoff nú á leið til Írlands, þar sem þeir munu funda með Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta og evrópskum ráðamönnum.
Á fundinum voru þeir Kushner og Witkoff annars vegar og Pútín, Júrí Úsjakóv, ráðgjafi forsetans, Valdimír Medinskí, sem stýrði rússnesku sendinefndinni í Abu Dhabi, og Kirill Dmitríve, sérstakur erindreki Pútíns sem hefur áður unnið með Kushner og Witkoff.
Vildi fá Pútín til að leyfa Evrópumönnum að vera með
Kushner sagði í dag að eitt af markmiðunum með fundinum væri að fá Pútín til að samþykkja aðkomu Evrópumanna að viðræðunum. Bandaríkjamenn og Vólódímír Selenskí hafa talað um að ríki Evrópu ættu að skipa einn mann til að koma að viðræðunum fyrir hönd heimsálfunnar en að finna þann mann hefur gengið illa.
Rússar hafa ekki viljað leyfa Evrópu að koma að viðræðunum á þeim grunni að ríki Evrópu aðstoði Úkraínumenn í að verjast innrás Rússa með fjármunum og hergögnum. Þá hafa ráðamenn í Rússlandi ítrekað sakað Evrópumenn um að standa í vegi friðar með þessari aðstoð og með því að vilja ekki taka til skoðunar tillögur Rússa um endurskipulagningu öryggismála í heimsálfunni.
Pútín og ráðamenn hans hafa lengi reynt að reka fleyg milli Bandaríkjanna og Evrópu og þá meðal annars með því að saka ráðamenn í Evrópu um að standa í vegi því að Trump geti bundið enda á stríðið í Úkraínu.
Trump hefur margsinnis tekið afstöðu með Pútín og Rússum á undanförnum mánuðum og hefur hann á dögunum talað um að samkomulag sem snúi að allri Evrópu gæti verið væntanlegt.
Á fundinum sagði Pútín enn eina ferðina að það væri Evrópa sem stæði í vegi friðar, þar sem ráðamenn vildu ekki samþykkja kröfur Rússa um hvernig halda ætti á spöðunum varðandi öryggismál í Evrópu, eða það hvernig NATO ætti að yfirgefa Austur-Evrópu.
Vilja losna við NATO úr Austur-Evrópu
Rússar hafa farið fram á að öryggisskipulag Evrópu verði endursamið. Það er ekki ný krafa þeirra en nú virðist sem ráðamenn í Bandaríkjunum styðji þá kröfu að einhverju leyti. Í samtali við AP-fréttaveituna segja greinendur að Bandaríkjamenn virðist tilbúnir til að gera breytingar á NATO í staðinn fyrir frið í Úkraínu.
Úkraínumenn óttast að sá friður myndi gera þá berskjaldaða fyrir annarri innrás seinna meir.
Fyrir innrásina í Úkraínu kröfðust Rússar þess að NATO hyrfi alfarið frá Austur-Evrópu og eru rússneskir erindrekar sagðir hafa ítrekað það á fundinum í Abu Dhabi.
Evrópskir erindrekar hafa nýlega bent á að margs konar stofnunum og samþykktum hafi verið ætlað að tryggja frið í Evrópu. Rússar hafi ítrekað grafið undan þeim og brotið gegn þeim á undanförnum árum.
Sjá einnig: Sagðir krefjast þess enn að NATO hörfi frá Austur-Evrópu
Hvað varðar Úkraínu hafa Rússar krafist þess að Úkraínumenn gefi eftir það landsvæði sem Rússar vilja og að umfangsmiklar takmarkanir verði settar á stærð úkraínska hersins og hvaða vopn hann má eiga.
Sjáist evrópskir hermenn í Úkraínu myndi stríð skella aftur á
Á fundinum í dag sagði Pútín að hann myndi ekki sætta sig við það að evrópskir hermenn yrðu sendir til Úkraínu til að tryggja frið, ef samið verður um frið. Hann myndi hefja stríð samstundis aftur.
Þá ítrekaði hann að ef semja ætti um frið, kæmi ekki til greina að frysta víglínuna þar sem hún er. Það eina sem kæmi til greina væri að fara eftir formlegum landamærum ríkjanna, eins og þau eru samkvæmt Rússum.
Pútín hefur innlimað fjögur héruð Úkraínu í stjórnarskrá Rússlands, auk Krímskaga sem Rússar hernumdu og innlimuðu ólöglega árið 2014. Það eru Sapórisjía, Kherson, Lúhansk og Dónetsk en af þeim héruðum stjórna Rússar eingöngu Lúhansk að öllu leyti, eða svo gott sem.
Úkraínumenn stjórna enn stórum hluta Sapórisjía og Kherson. Þá stjórna þeir enn tiltölulega stórum hluta Dónetsk og er það svæði kallað „virkisbeltið“. Það svæði er um fimmtungur Dónetsk og inniheldur nokkrar mjög víggirtar borgir.
Rússar hafa lagt mikið púður í að reyna að hernema þetta svæði en með takmörkuðum árangri og hafa krafist þess að Úkraínumenn verði að hörfa þaðan ef semja á um frið. Sérfræðingar segja að slíkt myndi gera Úkraínumönnum mun erfiðara að verjast Rússum í tilfelli annarrar innrásar og taka Úkraínumenn undir það.
Ummæli Pútíns gefa til kynna að hann muni ekki sætta sig við neitt annað en öll þessi fjögur héruð.
Sagði fólkið skipta meira máli
Pútín hélt því einnig fram að í hans huga skiptu landamærin ekki eins miklu máli og fólkið sem býr á þessu landsvæði. Menning þeirra og venjur og það að þau fengju að lifa eftir hefðbundnum gildum þeirra skipti máli.
Undanfarnir mánuðir hafa verið sérstaklega mannskæðir í Úkraínu og hafa fjölmargir óbreyttir borgarar látið lífið. Úkraínumenn hafa verið sérstaklega berskjaldaðir fyrir árásum Rússa vegna takmarkana sem settar hafa verið á notkun þeirra á Starshield-gervihnattanetinu, sem Úkraínumenn nota meðal annars til að verjast rússneskum sjálfsprengidrónum, og vegna skorts á flugskeytum í loftvarnarkerfi sem geta verið notuð til að skjóta niður rússneskar skotflaugar.
Sjá einnig: Aftur takmarkanir á Starshield í Úkraínu
Mannskæðasta árás Rússa hingað til átt sér stað í Spaórisjía-héraði þann 2. nóvember. Þá vörpuðu Rússar tæplega þriggja tonna sprengju á neðanjarðarskýli sem íbúar bæjarins Komyshuvakha höfðu leitað sér skjóls í.
Þangað fóru þeir eftir að Rússar vörpuðu smærri sprengjum á skóla þar sem íbúar höfðu komið saman til að taka við brauði og hreinlætisvörum, eins og þeir gerðu reglulega.
Rússneskir hermenn birtu í morgun myndband á samfélagsmiðlum sem sýnir árás konu í bíl í Kherson, einu héraðanna sem Rússar segjast eiga. Myndbandið sýnir hvernig sjálfsprengidróna var flogið á framrúðu konunnar meðan hún reyndi að bakka á brott.
Óljóst er hvort konan lifði af.
🚨 WAR CRIME: Russian forces targeted a civilian woman driving a car in Kherson with an FPV drone and proudly posted the video set to music on Telegram. https://t.co/egajQwPFy9
— UNITED24 Media (@United24media) November 12, 2026
Árásir sem þessar eru mjög tíðar í Kherson, eftir að Úkraínumenn stóran hluta héraðsins úr höndum Rússa árið 2024.
Þetta kalla Rússar sín á milli „safarí“ ferðir og hafa þær að miklu leyti beinst að fólki í Kherson. Myndböndum af þessum árásum á óbreytta borgara er oft dreift á samfélagsmiðlum í Rússlandi og þá í þeim tilgangi að afla peninga fyrir hersveitir.
Sjá einnig: „Veiddu“ grænmetissala með dróna
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna komst í fyrra að þeirri niðurstöðu að um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu væri að ræða. Þá höfðu nærri því 150 óbreyttir borgarar dáið í þessum árásum og hundruð höfðu særst.
Vill nýtt vopnahlé til að fjarlægja jarðsprengjur
Á fundinum talaði Pútín einnig um nýafstaðið staðbundið vopnahlé í Oleskhy í suðurhluta Úkraínu. Það vopnahlé var notað til að flytja fólk úr bænum, sem hefur verið í höndum Rússa um nokkurt skeið.
Þaðan höfðu borist fregnir af hræðilegum aðbúnaði íbúa og harðræði sem þeir voru beittir af Rússum.
Pútín sagðist vilja endurtaka leikinn í bænum Kostiantynivka, sem er á áðurnefndu „virkisbelti“ í Dónetsk. Forsetinn hélt því fram að Rússar stjórnuðu bænum, sem þeir gera ekki en þeir hafa verið að sækja fram við hann, og sagði að nota þyrfti þetta vopnahlé til að fjarlægja jarðsprengjur við bæinn.
Slíkt myndi auðvelda Rússum að leggja bæinn undir sig.
Úkraínumenn saka Rússa um að hafa notað vopnahléið í Oreshky til að flytja sveitir sínar framar á víglínuna og flytja vopn og birgðir til þeirra.