Jensen Huang lætur af störfum sem framkvæmdastjóri bandaríska tæknirisans Nvidia. Þetta tilkynnti stjórn félagsins fyrir skömmu.
Hlutabréfaverð fyrirtækisins tók mikla dýfu þegar upp komst um framhjáhald hans með konu sem er sögð vera kínverskur njósnari.
Í gær komst svo upp um meint framhjáhald hans með annarri konu, sem starfar hjá Nvidia.
Huang hefur verið framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá stofnun fyrir 33 árum. Í hans stað sest Colette Kress, fjármálastjóri Nvidia, í stól framkvæmdastjóra.
Í tilkynningu stjórnar er ekki í einu orði minnst á hneykslismálið. Huang er þó þakkað fyrir ómetanlegt framlag hans til fyrirtækisins í gegnum árin.
Kress hefur áratugareynslu af stjórnun fyrirtækja í tæknigeiranum, meðal annars innan vébanda Microsoft og Cisco.
Alice Huang er konan sem bandarískar leyniþjónustur segja að sé á mála hjá kínverskum yfirvöldum. Kínverska utanríkisráðuneytið neitar því staðfastlega.
Þau Huang og Huang – sem eru alls óskyld þótt þau beri sama eftirnafn – hafa hist á laun og sést snæða saman. Hún vann eitt sinn fyrir singapúrska fyrirtækið Megaspeed International sem á að hafa keypt örflögur af Nvidia fyrir um tvo milljarða dollara.
Rannsókn er hafin á því, bæði innan Megaspeed og af hálfu lögreglunnar í Singapúr, hvort starfsmenn Megaspeed hafi brotið lög og smyglað örflögum Nvidia til Kína.
Nvidia er í hópi verðmætustu fyrirtækja heims og örflögur þess þykja þær bestu í bransanum þegar kemur að því að keyra gervigreindarforrit. Bandaríkjastjórn, sem á í hörðu gervigreindarkapphlaupi við Kína, hefur lengi reynt að koma í veg fyrir að örflögur og annar hátæknibúnaður endi í höndum kínverskra stofnana.
Af þeim sökum hefur alríkislögreglan FBI hafið rannsókn á tengslum Jensens Huang við Alice Huang.
Vont versnaði
Í gær, örfáum dögum eftir að Huang viðurkenndi framhjáhaldið, er talið að stjórn Nvidia hafi hist til að ræða framtíð hans sem framkvæmdastjóri.
Um sama leyti fréttist svo af öðru meintu framhjáhaldi Huangs, með starfsmanni Nvidia, Kimberly Powell að nafni.
Í stefnu fyrirtækisins segir skýrum stöfum að starfsmenn skuli forðast að eiga í ástarsamböndum innan vinnustaðarins sem gætu haft hagsmunaárekstra í för með sér, ekki síst sambönd milli yfirmanna og undirmanna þeirra.
Málið allt gæti haft mikla þýðingu fyrir þjóðaröryggi Bandaríkjanna, ef í ljós kemur að Alice Huang er í raun og veru kínverskur njósnari og ef hún komst yfir viðkvæmar upplýsingar um framleiðsluhætti Nvidia.
Þá gætu breytingar í stjórnendateymi Nvidia haft mikið um það að segja hvernig fyrirtækið verður rekið í kjölfar hneykslisins. Og vegna stöðu Nvidia í hinum ört stækkandi gervigreindarbransa í Bandaríkjunum, getur það síðan haft áhrif á þróun þessarar nýju tækni í framtíðinni.