Einn lést og fjórir særðust, þar af einn alvarlega, í skotárás í og við líkamsræktarstöð í Washington D.C. í Bandaríkjunum í dag.
Árásarmaðurinn, hvítur karlmaður, er einnig látinn. Lögregla hefur ekki gefið upp dánarorsök hans. Hann hafði lokað sig inni í byggingu eftir skotárásina og viðbragð lögreglu var af þeim sökum gríðarlegt.
Skömmu áður en lögregla hélt blaðamannafund heyrðust skothvellir frá byggingunni sem árásarmaðurinn hafði lokað sig inn í.
Sjónarvottur segir við Washington Sun að hann hafi haldið að uppblásinn æfingabolti hafi sprungið með látum áður en hann sá eitt fórnarlambanna liggja á gólfinu. Síðan hafi heyrst skothvellir sem virtust koma að utan.
Vegfarendum og íbúum í grenndinni var sagt að halda sig frá vettvangi á meðan árásarmaðurinn lifði enn.
Fréttin hefur verið uppfærð nokkrum sinnum eftir því sem atburðarásinni hefur undið fram.