Clark hóf leikferil sinn í myndinni Dogfight árið 1991 en fann sig í aðstæðukómedíum (sit-com) á tíunda áratugnum. Árið 2000 hófust sýningar á Yes, Dear á CBS þar sem Clark lék aðalhlutverkið.
Þættirnir voru á dagskrá allt til 2006 og voru með mest áhorfðu þáttum þeirra ára sem þeir voru í loftinu. Clark lét ekki mikið sjá sig á skjánum eftir að þættirnir voru teknir af dagskrá.
Meðleikarar hans úr Yes, Dear hafa minnst hans á samfélagsmiðlum í dag. Þar á meðal skrifar Mike O'Malley, sem sló í gegn í Glee, segir hann einstakan og einn þann fyndnasta sem hann hafi kynnst á ævinni.