Listi yfir umsækjendur um starf forstjóra Landsvirkjunar verður ekki birtur opinberlega. Frestur til að sækja um rann út 1. nóvember.
Stjórn Landsvirkjunar sér um ráðningu forstjóra og ráðninga- og ráðgjafafyrirtækið Hagvangur er ráðgjafi í því ferli.
Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar, segist ekki geta sagt til um hvenær nýr forstjóri tekur við. Hún býst við að ráðningaferlið taki einhverjar vikur.
Listi yfir þá sem sóttu um starf forstjóra verður ekki birtur.
„Það er ekki gert og var tekið fram þegar starfið var auglýst. Landsvirkjun er undanþegin upplýsingalögum.“
Brynja segir það hafa sýnt að það fæli fólk kannski frá því að sækja um ef nafn þess er birt opinberlega.
Gerði athugasemdir við starfshætti stjórnar
Hörður Arnarson lét af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar í lok október eftir tæplega tveggja áratuga starf.
Hann gerði athugasemdir við starfshætti stjórnar fyrirtækisins og fjármálaráðuneytisins frá því í lok síðasta árs. Hörður taldi afskipti stjórnarinnar óeðlileg og að þau stefndu rekstri Landsvirkjunar í hættu.
Fjármálaráðherra telur að lög hafi ekki verið brotin í samskiptum stjórnar og forstjóra í aðdraganda afsagnar hans.
Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, tók tímabundið við starfi forstjóra 1. nóvember, og verður í starfinu þar til nýr forstjóri tekur við.