Kristrún er stödd í Dublin á Írlandi á fundi með öðrum þjóðarleiðtogum Evrópu. Þar er EPC (European Political Community) að funda og á morgun er óformlegur leiðtogafundur Evrópusambandsins.
Hún sat að ræða við Micheál Martin, forsætisráðherra Írlands, þegar Macron Frakklandsforseti mætti á svæðið. Hann gekk að Kristrúnu og heilsaði henni og á því augnabliki náði ljósmyndari AP myndinni sem er hér efst í fréttinni.
Lýsa atvikinu út frá ljósmynd
„Franski forsetinn náðist á mynd halla sér að henni í leit að knúsi en frú Frostadóttir virtist bregða sér undan á meðan hún hélt um öxl hans. Henni virtist þykja þetta óþægilegt er hún leit til hliðar á ljósmyndarann sem náði mynd af þessu vandræðalega augnabliki,“ segir í frétt Daily Mail um ljósmyndina.
Miðillinn slær upp fyrirsögninni „A very UN-frosty welcome: Emmanuel Macron leans in to greet Iceland's PM Kristrun Frostadottir at meeting of European leaders“ og leikur sér þar með eftirnafn Kristrúnar.
Irish Times náði hins vegar myndbandi af atvikinu. Þar sést Macron leggja hægri hönd á hægri öxl Kristrúnar sem situr og snýr í áttina frá forsetanum. Hún snýr sér til vinstri og leggur sína hægri hönd á vinstri öxl Macrons sem hafði í millitíðinni fært höndina sína yfir á vinstri öxl Kristrúnar.
Koss án vara
Því næst heilsast þau að frönskum sið með því sem Frakkarnir kalla faire la bise sem er eins konar koss á kinn án vara. Kinnarnar snertast en ekki varirnar. Daily Mail gerir því ansi mikið úr ljósmyndinni þó svo að myndbandið sýni annað.
Daily Mail er einn stærsti fjölmiðill Bretlands og eru um fimm hundruð þúsund manns daglegir áskrifendur blaðsins. Rúmlega tvö hundruð milljónir heimsóttu vef blaðsins í desember 2025 sem gerir vefinn einn þann mest lesna í heimi.