Maður hefur verið ákærður fyrir nauðgun gegn ólögráða stúlku og tvö ofbeldisbrot gegn lögreglumönnum. Meint brot voru framin árið 2024. Hann er sakaður um að hafa nauðgað stúlkunni föstudagskvöldið 13. september, í ótilgreindri íbúð. Er hann sagður hafa beitt stúlkuna ofbeldi og ólögmætri nauðung, en hann tók um háls hennar, setti fingur inn í leggöng hennar og hafði við hana samræði án þess að hún gæti spornað við því sökum ölvunar.
Ákærður fyrir að nauðga stúlku og beita lögreglumenn ofbeldi