Breska ríkisútvarpið BBC er meðal þeirra sem greina frá. Árásin átti sér stað í vinsælu hverfi sem er í göngufæri frá Hvíta húsinu. Að minnsta kosti einn þeirra sem urðu fyrir skoti var staddur í líkamsræktarstöðinni og fannst látinn í blóðpolli, að sögn sjónarvotts sem ræddi við AP-fréttaveituna. Fleiri skothvellir heyrðust úr sömu byggingu og taldi vitni að skothvellirnir væru æfingabolti að springa.
Lögreglu barst tilkynning um árásina rétt fyrir klukkan 8 í morgun að staðartíma eða um 13 að íslenskum tíma. Skotárásin átti sér stað á Logan Circle-svæðinu, innan við 1,6 kílómetrum norður af Hvíta húsinu.
Um níutíu mínútum síðar sagði lögreglan að hinn grunaði hefði lokað sig af inni í nálægri íbúðabyggingu við Fimmtánda stræti.
UPDATE: The incident has resulted in a barricade situation in the 1500 block of 15th Street, Northwest. MPD’s Emergency Response Team is on the scene. Please avoid the area as we work to resolve the incident. Updates will come through this platform.
— DC Police Department (@DCPoliceDept) November 12, 2026
Einn í lífshættu
Jeffrey W. Carroll, starfandi lögreglustjóri í Washington DC, sagði á blaðamannafundi að lögreglu hefði borist tilkynning um árásina rétt fyrir klukkan 8 að staðartíma og hún hefði verið komin á vettvang innan við hálfri mínútu síðar.
Einn hefði látið lífið í skotárásinni. Fjórir aðrir hefðu verið skotnir og fluttir á sjúkrahús og einn þeirra væri í lífshættu.
Lögreglustjórinn sagði að lögreglumenn hafi verið í samskiptum við meintan árásarmann þar sem hann hafði lokað sig af á sjöundu hæð íbúðabyggingarinnar þegar þeir heyrðu skothljóð. Eftir að þeir brutu sér leið inn í bygginguna hafi þeir fundið manninn með skotsár. AP-fréttaveitan greinir frá því að hinn grunaði hafi skotið sjálfan sig til bana.
Carroll bætti við að staðan væri „enn óljós“ og að yfirvöld væru að reyna að „tryggja að öll byggingin væri örugg“.
Rannsaka ágreining í fjölbýlishúsinu
Lögreglustjórinn sagði að grunur væri um íkveikju en tekist hefði að slökkva eldinn. Lögreglumenn vinni enn að því að rýma svæðið í byggingunni þar sem árásin átti sér stað og að yfirvöld telji að hinn grunaði eigi íbúðina sem hann var í.
Carroll sagði að hinn grunaði hefði „skotið í gegnum hurðina á lögreglumenn að minnsta kosti tvisvar eftir að hann lokaði sig inni“. Hinn grunaði væri hvítur karlmaður og lögreglan hefði hugmynd um hver hann væri.
Lögreglustjórinn bætti við að lögreglan teldi að „einhvers konar ágreiningur hefði verið í fjölbýlishúsinu“ en að rannsókn stæði enn yfir. Lögreglan vinni að því að átta sig á tímalínu atburða, hvað lá að baki árásinni og öðrum smáatriðum.
Carroll sagði að fyrstu skotunum hefði verið hleypt af inni í líkamsræktarstöðinni og ítrekaði að hinn grunaði virtist hafa skotið sjálfan sig.
Samningamenn lögreglu hefðu verið að ræða við hinn grunaða í síma þegar þeir heyrðu skothvell. Hann hefði þá hætt að tjá sig.
Fréttin var síðast uppfærð klukkan 16:30.