Í síðustu viku stóð Arion banki ásamt fleirum fyrir ráðstefnu í London til kynningar á fjárfestingartækifærum á Íslandi. Ráðstefnan þótti heppnast afbragðsvel og hana sóttu 4-500 manns.Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, var ræðumaður dagsins og orðið á götunni er að hún hafi gersamlega slegið í gegn. Hún fjallaði m.a. um ýmsar breytingar sem ríkisstjórn hennar hefur hrint í framkvæmd á þeim tveimur árum sem liðin eru frá því stjórnarskipti urðu eftir kosningarnar í nóvember 2024.
Orðið á götunni: Kristrún sló í gegn í London