Frá þessu greinir Pétur í færslu á Facebook. Þar segir hann að þegar hann tók sæti í hagræðingarhópnum í sumar hafi hann gert það af heilindum. Hann telji mikilvægt að borgarstjórn leiti stöðugt leið til að bæta rekstur Reykjavíkurborgar, nýta fjármuni borgarbúa betur og einfalda stjórnsýsluna. Hann hafi því verið tilbúinn til þverpólitísks samstarfs um það mikilvæga verkefni.
„En reynsla síðustu mánaða hefur valdið mér vonbrigðum.“
Róbert leiðir hópinn
Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 12. júní síðastliðinn að skipa stýrihóp um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar, er formaður hópsins, sem hefur þegar komið talsverðu í verk hvað hagræðingu varðar.
Nú síðast var stöðugildum í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar fækkað um 74. Borgarstjóri sagði þá að mikið verk væri þó áfram fyrir höndum við hagræðingar í rekstri borgarinnar.
Ósammála mörgum ákvörðunum
Í færslu sinni segir Pétur að meirihlutinn hafi þegar ráðist í umfangsmiklar breytingar á stjórnkerfi borgarinnar, lagt niður starfsemi og sagt upp fjölda starfsfólks. Hann hafi verið ósammála mörgum þessara ákvarðana, bæði efnislega og vegna þess hvernig þær hafa verið undirbúnar.
„Mér hefur fundist allt of mikill hraði einkenna vinnuna og að ákvarðanir hafi ítrekað verið teknar án nægilegrar greiningar á öðrum valkostum og mögulegum afleiðingum. Ég hefði viljað gefa okkur meiri tíma, vanda undirbúninginn betur og meðal annars nýta eðlilega starfsmannaveltu þar sem það væri mögulegt. Það er nefnilega munur á hagræðingu og niðurskurði.“
Það sé ekki sjálfkrafa hagræðing að leggja niður starfsemi eða fækka starfsfólki. Stjórnendur þurfi að skoða hvað sparast í raun, hvaða þjónusta tapast og hvort ákvarðanirnar geti jafnvel reynst dýrari til lengri tíma.
Forsendur fyrir þátttöku brostnar
Pétur segist ítrekað hafa komið þessum sjónarmiðum sínum á framfæri en of mikið hafi borið í milli um forsendur, vinnubrögð og útfærslur.
„Við þessar aðstæður tel ég ekki lengur forsendur fyrir þátttöku minni. Ég gekk til samstarfsins til að stuðla að vönduðum ákvörðunum og skynsamlegum umbótum. Ég get hins vegar ekki verið áfram í hópnum þegar ég er of oft í grundvallaratriðum ósammála því hvernig staðið er að verkefninu.“
Hann sé áfram tilbúinn til samstarfs við meirihlutann um ábyrga fjármálastjórn og skynsamlegar umbætur í rekstri Reykjavíkurborgar og hægt sé að gera góða borg enn betri.
„Góð hagræðing snýst nefninlega ekki um hversu mörgum störfum við fækkum eða hversu mikinn sparnað við getum sýnt fram á í Excel. Hún snýst um hvort við náum raunverulega að bæta reksturinn og þjónustuna og nýta fjármuni borgarbúa betur.“