Fasteignafélagið Þórkatla tilkynnti um endurkaupaáætlunina í gær. Grindvíkingar sem vilji flytja aftur geti gert það með þrennum hætti, að því er sagði í tilkynningu Þórkötlu.
Pétur Georg Markan bæjarstjóri Grindavíkur sagði í dag við Vísi að mikilvægt væri að hlustað yrði á sjónarmið Grindvíkinga.