Alexander Darkíeff, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum, er látinn 66 ára að aldri.
Andlátið bar brátt að, segir í tilkynningu frá rússneska utanríkisráðuneytinu, þar sem segir enn fremur að Darkíeff hafi verið framúrskarandi erindreki rússneskra stjórnvalda, reynslumikill leiðtogi og mikils metinn samstarfsmaður.
Darkíeff gegndi áður stöðu sendiherra í Kanada en var skipaður sendiherra í Bandaríkjunum í mars á síðasta ári.
Darkíeff fór eitt sinn fyrir Norður-Ameríkudeild rússneska utanríkisráðuneytisins og var sérfræðingur í sambandi Rússlands og Bandaríkjanna, að því er segir í frétt AFP um málið.
Þegar Rússar réðust inn í Úkraínu árið 2022 sagði Darkíeff að það hefði verið nauðsynleg aðgerð.