Þetta kemur fram í nýjum tölum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sem birtar voru í dag. Þær sýna að sífellt stærri hluti íbúða selst undir auglýstu söluverði samhliða því að hægt hefur á verðhækkunum á fasteignamarkaði.
Hlutfall nýrra íbúða sem seljast undir ásettu verði hefur farið vaxandi frá miðju ári 2024. Undanfarna mánuði hefur um helmingur þeirra selst á lægra verði en upphaflega var auglýst. HMS bendir þó á að meiri sveiflur séu í þessum tölum en á markaði eldri íbúða, þar sem kaupsamningar um nýjar íbúðir séu færri og hver sala hafi því hlutfallslega meiri áhrif.
Nær níu af hverjum tíu eldri íbúðum undir ásettu verði
Þróunin er enn meira áberandi á markaði eldri íbúða. Á síðustu þremur mánuðum hafa að meðaltali tæplega 85 prósent þeirra selst undir auglýstu söluverði á höfuðborgarsvæðinu.
Um síðustu áramót var hlutfallið um 75 prósent og haustið 2024 var það um 63 prósent, þegar áhrifin af húsnæðiskaupum Grindvíkinga voru hvað mest.
Hlutfallið er nú orðið lítillega hærra en árið 2019, þegar um 81 prósent eldri íbúða seldust að jafnaði undir auglýstu verði. Árið 2020 tók hlutfallið hins vegar að lækka hratt þegar vextir lækkuðu og mikil eftirspurn ýtti undir verðhækkanir á fasteignamarkaði.
Aðeins fimm til sjö prósent íbúða hafa selst yfir auglýstu söluverði undanfarna mánuði.
Sjö af hverjum tíu segja verðlækkanir algengar
Ný könnun HMS meðal fasteignasala staðfestir að verðlækkanir eru orðnar algengar í söluferli íbúða.
Um sjö af hverjum tíu fasteignasölum segja að verð sé oft eða alltaf lækkað í söluferlinu. Það getur annaðhvort falist í því að auglýst söluverð sé lækkað eða að seljandi samþykki kauptilboð undir ásettu verði. Um fjórðungur fasteignasala segir slíkar lækkanir stundum eiga sér stað en aðeins fjögur prósent telja þær sjaldgæfar eða aldrei eiga sér stað.
Samkvæmt HMS hefur verðlækkunum fjölgað frá miðju ári 2025, þegar stofnunin hóf að kanna viðhorf fasteignasala með þessum hætti.