Ásakanir í garð Russells Brand vörðuðu sex konur og náðu yfir tímabilið 1999 til 2009. Hann var ákærður fyrir þrjár nauðganir, þrjú kynferðisbrot og fyrir tilraun til blygðunarsemisbrots. Brand var sakfelldur í fjórum liðum síðastliðinn fimmtudag og hlaut á mánudaginn tíu og hálfs árs fangelsisdóm.
Brand hefur verið í haldi í fangelsinu HMP Wandsworth í suðurhluta Lundúna frá því hann var sakfelldur. Hann verður áfram þar næstu vikurnar áður en bresk fangelsismálayfirvöld ákveða hvar best sé að vista hann.
Drill-rapparinn Terngu Agera, sem gengur undir listamannsnafninu Mover, hefur þegar nýtt tækifærið til að senda Brand kveðju úr fangelsi. Agera afplánar lífstíðarfangelsi (með lágmarksvist upp á þrjátíu ár) eftir að hann stakk hinn litháíska Zydrunas Laurinavicius til bana í Lundúnum árið 2014 þegar hann rændi af honum Rolex-eftirlíkingu.
Agera sendi Brand óhugguleg varúðarorð úr fangaklefa sínum í gærkvöldi, þrátt fyrir að símar séu bannaðir í breskum fangelsum. Á mynd sem Agera birti af fangelsisglugga sínum á Snapchat skrifaði hann: „Russell Brand, þú óþekki strákur, við sjáumst, drengur minn“.
Sungu um Brand í fangelsinu
Brand var dæmdur í Southwark Crown-dómstól á mánudaginn og verður á kynferðisafbrotamannaskrá til æviloka. Vegna glæpa sinna mun Brand væntanlega mæta þónokkru mótlæti frá samföngum sínum.
Eftir að Brand var sakfelldur bárust fregnir af því að samfangar hans hefðu sungið (í íslenskri þýðingu sem fangar ekki orðaleikinn): „Það er glænýr perri (e. Brand new nonce) í álmunni! Glænýr perri. Kuntan þín, Brand, þú ert ekki jafnkokhraustur núna.“
„Brand og Agera eru ekki í sama fangelsinu en það gerir það ekki auðveldara að heyra að einhver eins og hann sé á eftir þér,“ hefurDaily Mail eftir heimildarmanni.
Agera hefur haldið áfram að gefa út tónlist frá því hann var fangelsaður og birtir reglulega færslur innan úr fangelsinu. Varsla og notkun á farsímum innan veggja breskra fangelsa er lögbrot og geta þeir sem eru gripnir með síma hlotið frekari fangelsisdóm og sektir. Á síðustu árum hefur það aukist að drónar séu notaðir til að koma fíkniefnum, símum og vopnum inn í bresk fangelsi.
Talsmaður breskra fangelsismálayfirvalda brást við fregnunum með yfirlýsingu. „Það er algjörlega óásættanlegt fyrir lögbrjóta að nota samfélagsmiðla í fangelsinu og þeir sem eru gripnir við að brjóta reglurnar hljóta þungar refsingar.“
„Við tökum þessa hluti alvarlega og munum grípa til viðeigandi aðgerða. Þess vegna erum við að fjárfesta um 75 milljónum punda (um tólf milljörðum króna) í öryggisráðstafanir til að bregðast við ólöglegum hlutum.“