Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar, umferðin.is. Þar segir að í fyrramálið fari að snjóa í fremur hægri og suðlægri átt sunnan- og vestanlands. Þegar líður á daginn fer hlýnandi og skiptir yfir í slyddu og síðan í rigningu.
„Vindur er það hægur að hann nær sums staðar ekki að ryðja kalda loftinu frá, en úrkoman heldur áfram og því gæti komið frostregn síðdegis,“ segir á síðunni.
Vegna þessa eru líkur á flughálku um suðvestanvert landið, til að mynda á stöku stað á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu.