Til stendur að opna fyrir umferð um rampinn í síðasta lagi klukkan 17 en framkvæmdirnar hafa staðið yfir frá því klukkan 9 í morgun, samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar.
„Þetta náttúrulega hefur áhrif um allt. Þegar ein leið stíflast þá þyngist á öllum hinum. Þeir eru með leyfi til að hafa þetta lokað til klukkan fimm,“ segir Logi Sigurjónsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi. Hann bindur vonir við að framkvæmdum ljúki eitthvað fyrr.
Frekari truflanir á morgun
Á morgun fimmtudag verður lokað fyrir umferð af Bústaðavegi inn á rampinn niður á Kringlumýrarbraut milli klukkan 11 og 15. Einnig eru fyrirhugaðar malbiksviðgerðir við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Laugavegar í suðurátt klukkan 11 til 13 á morgun og verður þrengt niður í eina beygjurein.
„Búast má við umferðartöfum og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi,“ að sögn Vegagerðarinnar.
Fréttin hefur verið uppfærð.