„Stjórn Landsvirkjunar er sjálfstæð stjórn og mér finnst hún í rauninni bera alla ábyrgð á málunum eins og þeim er fyrir komið í dag,“ sagði Inga þegar hún svaraði fyrirspurn Stefáns Vagns Stefánssonar, þingmanns Framsóknar, sem spurði hvort hún myndi beita sér fyrir því að Alþingi fengi gögn sem gætu varpað ljósi á ólíkar frásagnir af fundi sem Hörður Arnarsson, fyrrverandi forstjóri Landsvirkjunar, óskaði eftir að halda í janúar.
Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður Landsvirkjunar hefur sagt að fjármálaráðuneytið hafi lagt til að fundinum yrði frestað og hann yrði fyrst haldinn með stjórninni. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefur sagt að um tvo aðskilda fundi hafi verið að ræða og að fundarbeiðni Harðar hafi ekki verið fylgt eftir.
Inga sagðist treysta stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til að rannsaka málið og sagðist reiðubúin að aðstoða við gagnaöflun ef hún gæti lagt eitthvað af mörkum.
Stefán spurði Ingu hvort hún teldi æskilegt að stjórnin leiddi ráðningu nýs forstjóra á meðan málið væri óskýrt. Inga ítrekaði fyrri svör sín að stjórnin væri sjálfstæð í sínum störfum þótt fjármálaráðherra skipi stjórnina. Inga sagði hins vegar mikilvægt að upplýsa málið til fulls.