Samkvæmt Ásgeiri Erlendssyni, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, var þessi ákvörðun tekin með tilliti til öryggis áhafna og þeirra sem þurfa á aðstoð að halda. Ganga þurfi úr skugga um að búnaðurinn sé fullkomlega öruggur.
Ásgeir segir að Samgöngustofa hafi verið upplýst um stöðuna og að allt kapp sé lagt á að finna orsökina.
Þyrlusveitin mun áfram geta sinnt sjúkraflugi, brugðist við slysum á landi og sinnt hefðbundnum löggæsluverkefnum, svo lengi sem verkefnin krefjast ekki hífinga.
„Þessi tímabundna ráðstöfun hefur skert viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar í þeim verkefnum sem krefjast hífinga, einkum á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Öryggi áhafna Landhelgisgæslunnar og farþega okkar þarf þó ætíð að vera í fyrirrúmi og vinna síðustu daga hefur miðast við að ganga úr skugga um að það sé tryggt,“ segir Ásgeir.
Haft var samband við helstu samstarfsaðila Landhelgisgæslunnar til að kanna möguleika á aðstoð ef þörf er á úti á hafi kringum Ísland.
Vonast er til þess að spilin verði aftur tekin í fulla notkun á næstu dögum.