Lögreglumenn í þýsku borginni Iserlohn ráku upp stór augu þegar rafhlaupahjól, sem þeir höfðu lagt hald á hjá 16 ára pilti, reyndist geta náð 127 kílómetra hraða á klukkustund. Hjólinu hafði verið breytt til að auka hraða þess langt umfram það sem leyfilegt er.Lögreglumenn á eftirlitsferð í Iserlohn, í sambandslandinu Nordrhein-Westfalen, að kvöldi hrekkjavökunnar veittu þá athygli hópi ungmenna á rafhlaupahjólum og ákváðu að kanna málið nánar.
Lögreglan trúði vart eigin augum þegar rafhlaupahjólið var prófað