Margir þjóðarleiðtogar lögðu í dag leið sína á þrítugustu og fyrstu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP31, sem var sett í Antalyu í Tyrklandi í upphafi vikunnar.
Sem fyrr er markmiðið að vinna gegn losun gróðurhúsalofttegunda og stemma þannig stigu við loftslagsbreytingum.
Leiðtogarnir funda í dag og á morgun, en skarð er fyrir skildi þar sem þjóðarleiðtogar þeirra fimm ríkja sem losa mest af gróðurhúsalofttegundum, Kína, Bandaríkjanna, Indlands, Rússlands og Japans, mæta ekki til leiks.
Lula da Silva, forseti Brasilíu, mætti hins vegar vígreifur til ráðstefnunnar.
Í ræðu sinni sagði hann að bakslag hefði orðið í umræðu um loftslagsmál frá síðustu ráðstefnu, sem haldin var í heimalandi hans í fyrra. Stríð og tollar hefðu tekið yfir sviðið.
„Í upphafi þessa árs hvarf allt tal um loftslagsbreytingar úr ræðum og ritum þjóðarleiðtoga. Hjá G7 og G20-löndunum, nokkrum helstu framleiðendum gróðurhúsalofttegunda, þögnuðu áhyggjurnar. Nú tölum við frekar um vopn og tolla en framtíð komandi kynslóða.“
Hvaðan á raforkan að koma?
Gestgjafarnir í Tyrklandi leggja áherslu á að í lokaniðurstöðum ráðstefnunnar verði sett fram markmið um að auka hlut raforku í orkunotkun heimsins úr rúmlega tuttugu prósentum í þrjátíu og fimm prósent árið 2035. Það myndi í orði draga úr útblæstri frá bílum, stóriðju og húsum. Tillagan tilgreinir hins vegar ekki hvort nýja raforkan yrði framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum, svo sem sólar- eða vindorku.
Recep Tayyip Erdoğan, forseti Tyrklands, sagði að náttúran greiddi hátt verð fyrir yfirstandandi stríðsátök víða um heim.
Hann hvatti til þess að bundinn yrði endi á þá hugsun að fórna náttúrunni í þágu efnahagslegra hagsmuna og sagði mannkynið þurfa sáttmála um samspil milli fólks og náttúru.
Fjögur meginstef
Antonio Guterres, fráfarandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lagði upp fjögur meginatriði fyrir viðræður næstu daga.
Ríki skulu snúa hratt frá notkun jarðefnaeldsneytis
- Hvert ríki skuli leggi fram raunhæfa áætlun um að draga verulega úr notkun mengandi orkugjafa á komandi árum. Kolaver verði alfarið aflögð 2040.
Verja fólk fyrir hamförum
- Komið verði upp viðvörunarkefi og vörnum gegn flóðum, þurrki og hækkandi yfirborði sjávar.
Samvinna í stað sundrungar
- Ríki heims skuli taka höndum saman um að leysa verkefni sem eru einstökum ríkjum ofviða.
Þróunarríki fái styrki til aðlögunaraðgerða
- Iðnríkin leggi til fé í sjóði til þess að auðvelda þróunarlöndum skiptin yfir í endurnýjanlega orkugjafa.
Guterres gagnrýndi annars hagsmunagæslulið olíu- og gasframleiðenda harðlega í ávarpi sínu í dag.
„Okkar helsta skylda hvað varðar loftslagsmál er að segja satt. En hinn sári sannleikur er að við erum að missa loftslagskrísuna úr höndum okkar. Losun gróðurhúsalofttegunda náði sögulegu hámarki 2025. Metin hríðfalla og síðustu fjögur ár eru þau heitustu frá upphafi mælinga. Á meðan jarðefnaeldsneytisfyrirtækin græða á tá og fingri erum við að ganga af plánetunni okkar dauðri.“
Guterres sagði málstaður jarðaefnaeldsneytis að hruni kominn og mengunarvaldarnir þurfi að heyra sögunni til. En það gerist ekki af sjálfu sér.
„Það er tími til kominn að losa sig undan ánauð fíkninnar í jarðefniseldsneyti.“