Daníel Andri Eggertsson, gítarleikari í hljómsveitinni Færibandinu, hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum að undanförnu fyrir myndbönd þar sem hann rifjar upp sögur af tónlistarfólki sem setti svip sinn á íslenskt tónlistarlíf um miðja síðustu öld.Með myndböndunum hefur hann meðal annars kynnt yngri kynslóðina fyrir listafólki á borð við Hallbjörgu Bjarnadóttur, Hauk Morthens, Ingibjörgu Þorbergs og Vilhjálm Vilhjálmsson. Það sem byrjaði sem eitt myndband um Hallbjörgu hefur nú þróast í stærra verkefni.
Daníel segir sögur af goðsögnum íslenskrar tónlistarsögu: „Það eru minningar þarna sem eru bara á bláþræði“