Bréfið, sem lesa má hér, var sent af Will Scharf, lögmanni Hvíta hússins, og var stílað á Robert Garcia, sem verður formaður stjórnsýslu- og eftirlitsnefndar fulltrúadeildarinnar á næsta ári.
Bæði Scharf og Todd Blanche, dómsmálaráðherra sem hefur einnig hótað Demókrötum rannsóknum á undanförnum dögum, hafa áður verið einkalögmenn Trumps.
Í bréfinu segist Scharf vilja minna Garcia á takmarkanir sem stjórnarskrá Bandaríkjanna setur á rannsóknir þingsins og segir að Demókratar hafi sýnt fram á vilja til að brjóta af sér. Vísar hann sérstaklega til þess að Hæstiréttur Bandaríkjanna hafi úrskurðað á árum áður að rannsóknir sem hefðu þann eina tilgang að auka orðspor þess sem rannsakar eða refsa þeim sem eru til rannsóknar, væru ólöglegar.
„Við fylgjumst með þeim ómaklegu og geðþáttakenndu hótunum sem berast nú frá þingmönnum Demókrataflokksins sem leitast við að misnota löggjafarferlið til að hræða og hindra lögmæta starfsemi stjórnvalda.“
Scharf sagði einnig að opinberar yfirlýsingar Demókrata undirstrikuðu þessar áhyggjur Trump-liða.
„Þú og samstarfsmenn þínir á þingi hafið lýst því yfir að þið munið gefa út stefnur í þeim tilgangi að áreita, ógna og koma í veg fyrir að ötulir starfsmenn stjórnsýslunnar geti unnið störf sín.“
Vísar í „sláandi“ yfirlýsingar
Þá vísar lögmaðurinn í ummæli nokkurra þingmanna sem honum þykja styðja málflutning sinn um að rannsóknirnar hafi þann eina tilgang að refsa starfsmönnum ríkisstjórnarinnar. Þar á meðal eru yfirlýsingar sem Scharf segir að sýni að væntanlegum rannsóknum sé ætlað að koma fólki í fangelsi.
„Þínar eigin yfirlýsingar eru raunar sláandi því þær bera með sér öll þessi illkvittnislegu og óviðeigandi einkenni.“
Því til stuðnings vísar Scharf til þess að Garcia hafi sagt: „Hann hefur ekki rangt fyrir sér“, þegar Mike Johnson, fráfarandi þingforseti fulltrúadeildarinnar, hafi sagt að það eina sem Garcia myndi gera á þingi væri að reyna að góma Donald Trump forseta, fjölskyldu hans, embættismenn, stuðningsmenn Repúblikanaflokksins og viðskiptaleiðtoga.
„Þú hefur ítrekað sakað forsetann og embættismenn um glæpi og hefur stært þig opinberlega af því að vera í samskiptum við ríkissaksóknara til að koma höndum yfir upplýsingar fyrir stjórnsýslu- og eftirlitsnefndina með þeim tilgangi að sækja þá til saka,“ sagði Scharf.
„Einkennilega, hefur þú sjálfur sagt hvatir þínar ekkert annað en „hommalegan“ „smásálarskap“ frekar en að þú hafir einhvern löggjafarlegan tilgang og hefur borið sjálfan þig við djöflatrúð.“
Lögmaður Hvíta hússins varar Garcia við því að ef Demókratar standa við stóru orðin, gæti framkvæmdavaldið hafið rannsóknir í garð þingsins.
Í bréfi sínu nefnir Scharf ekki hvernig yfirlýsingar hans ríma við sérstaka klausu stjórnarskrárinnar um málfrelsi og umræðu þingmanna, sem hefur varið þá gegnum stefnum eða lögsóknum framkvæmdavaldsins.
Bréfið er mjög í takt við færslur sem Trump hafði birt á Truth Social tveimur dögum áður en það var sent. Þar hélt Trump því fram að Demókratar væru að búa sig undir ólöglegar rannsóknir gegn sér og ættu heima í fangelsi vegna þessa.
Hann hélt því einnig fram að ekkert tilefni væri til að rannsaka störf hans og hans fólks. Önnur færslan endaði á því að hann væri með henni að skipa dómsmálaráðuneytinu að rannsaka þessa meintu glæpi Demókrata.
Ætla ekki að láta ógna sér
Garcia birti í gær myndband um bréfið þar sem hann byrjar að spyrja hvað Donald Trump sé að reyna að fela. Í myndbandinu segir þingmaðurinn einnig að stjórnarskrá Bandaríkjanna sé skýr um heimildir þingsins til að rannsaka aðra þætti ríkisvaldsins, þar sem allir þættir (framkvæmdavald, löggjafavald og dómsvald) eigi að vera jafnir.
Hann segir að væntanlegar rannsóknir Demókrata muni sannarlega hafa löggjafalegan tilgang þar sem þeir vildu semja góð lög gegn spillingu og tryggja að ríkisvaldið þjóni bandarísku þjóðinni.
„En núna hefur Donald Trump sent lögmann sinn, í rauninni til þess að hóta mér og öðrum Demókrötum af því við ætlum að tryggja ábyrgð og raunverulegt eftirlit,“ sagði Garcia.
„Sannleikurinn er sá að Trump-fjölskyldan er milljörðum dala ríkari á meðan bandarískur almenningur á í basli með að borga reikninga og kaupa mat. Við munum ekki láta Donald Trump eða aðra auðjöfra eða valdamikla menn í þessu landi ógna okkur.“
What is Donald Trump hiding? As Congress, we have the Constitutional authority to conduct oversight that informs legislation and ensure we have a government that actually works for the people. We will not be intimidated by the White House. https://t.co/b8kgwbmRqL
— Congressman Robert Garcia (@RepRobertGarcia) November 11, 2026
Forbes sagði frá því í haust að síðan hann fór aftur í forsetaframboð hefði auður Trumps aukist gífurlega. Árið 2023 var Trump metinn á 2,3 milljarða dala. Sá auður fór upp í sjö milljarða á þessu ári.
Þessi auður er að stórum hluta til kominn vegna viðskipta fjölskyldu Trumps með rafmyntir.