Engar innanlandsflugferðir fara í loftið á meðan flugbannið er í gildi, samkvæmt flugfélaginu United Airlines.
Flugmálastjórn Bandaríkjanna, FAA, metur brottfarir í millilandaflugi í hverju tilviki fyrir sig. Að minnsta kosti eitt flug hefur farið af stað, frá Boston til Abú Dabí.
United Airlines hefur ráðlagt farþegum að kanna nýjustu stöðu flugferða sinna eða endurbóka á vefsíðu félagsins.
Icelandair tilkynnti fyrir skömmu að stöðvunin hefði áhrif á flugleiðir félagsins. Í tilkynningu á síðu þeirra segir:
„Flugmálastjórn Bandaríkjanna (FAA) hefur sett á landsbundið flugbann sem nær til allra flugferða innan flugvalla í Bandaríkjunum. Þetta mun valda töfum og truflunum í leiðakerfi okkar.
Við fylgjumst náið með stöðunni. Farþegar eru hvattir til að fylgjast reglulega með stöðu flugs síns til að fá nýjustu upplýsingar.“
Búið er að merkja „seinkun“ við allar komur til Keflavíkur frá Bandaríkjunum í nótt og á morgun. Flug til Bandaríkjanna er hins vegar allt enn þá merkt „á áætlun“.
Ekki liggur fyrir hversu langan tíma það mun taka að leysa vandamálið í fjarskiptakerfinu. Markwayne Mullin, ráðherra heimavarna, segir að það gæti tekið dágóða stund.
Nærri sjö þúsund flugferðum hefur þegar verið aflýst eða seinkað. Flugvélar sem þegar eru í loftinu munu klára ferðir sínar og lenda á leiðarenda.
Markwayne Mullin, ráðherra heimavarna, segir samskiptavandann sem veldur því að flugumferð hefur verið stöðvuð ekki tengjast sambandsleysinu hjá Microsoft.
Síðast þegar allt flug var stöðvað á landsvísu í Bandaríkjunum var þegar tilkynningarkerfi fyrir flugmenn bilaði í janúar 2023.
Þar áður var flug stöðvað á landsvísu eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001.
Markwayne Mullin, ráðherra heimavarna segir ekkert benda til þess að flugumferð um landið hafi verið stöðvuð vegna ógnar við Bandaríkin.
„Enn sem komið er bendir ekkert til þess að þetta hafi verið árás gegn okkur,“ sagði Mullin við blaðamenn í Hvíta húsinu.
„Þetta var bilun í fjarskiptum,“ sagði hann.
Gott kvöld og velkomin á fréttavakt um flugumferð í Bandaríkjunum.
Bandaríska flugmálastjórnin, FAA, hefur stöðvað alla flugumferð í Bandaríkjunum vegna vandamála í fjarskiptum flugumferðarstjórna.
Málið er til rannsóknar.
Allar flugvélar sem áttu að fara í loftið í kvöld hafa verið kyrrsettar.
Ég heiti Malín Eyfjörð Ægisdóttir og fylgist með málinu í kvöld.