Steve Witkoff, annar erindreka Trumps, sagði evrópskum leiðtogum í gær að Pútín hefði sagst opinn fyrir því að Evrópa kæmi að viðræðunum.
Talsmaðurinn talaði við blaðamenn í Rússlandi í dag og þar sagði hann að Rússar væru opnir fyrir viðræðum við ráðamenn í Evrópu. Engar almennilegar umræður um slíkt hefðu átt sér stað enn.
Samkvæmt Reuters sagði hann einnig að Rússar þyrftu fyrst að fá staðfest að Evrópumenn hefðu raunverulegan vilja til að ræða við Rússa og leggja eitthvað af mörkum. Áður verði ekki hægt að hleypa þeim að borðinu.
Hafa ekki viljað tala við Evrópumenn
Erindrekar frá Rússlandi, Úkraínu og Bandaríkjunum funduðu nýverið í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Evrópskir erindrekar voru einnig á svæðinu en fengu ekki að sitja viðræðurnar sjálfar.
Rússar hafa ekki viljað leyfa Evrópu að koma að viðræðunum á þeim grunni að ríki Evrópu aðstoði Úkraínumenn í að verjast innrás Rússa með fjármunum og hergögnum. Þá hafa ráðamenn í Rússlandi ítrekað sakað Evrópumenn um að standa í vegi friðar með þessari aðstoð og með því að vilja ekki taka til skoðunar tillögur Rússa um endurskipulagningu öryggismála í heimsálfunni.
Pútín og ráðamenn hans hafa lengi reynt að reka fleyg milli Bandaríkjanna og Evrópu og þá meðal annars með því að saka ráðamenn í Evrópu um að standa í vegi þess að Trump geti bundið enda á stríðið í Úkraínu.
Eftir fundarhöldin í Furstadæmunum fóru erindrekar Trumps til Moskvu þar sem þeir áttu langan fund með Pútín. Þar gaf forsetinn til kynna að hann myndi ekki binda enda á innrásina í Úkraínu, án þess að fá stjórn á nokkuð umfangsmiklum hluta landsins sem Rússar stjórna ekki.
Óljósar kröfur um NATO og Evrópu
Þá skammaðist Pútín út í ráðamenn Evrópu á fundinum og sagði þá meðal annars standa í vegi friðar í Úkraínu, með því að styðja Úkraínumenn og neita að ræða heildaröryggismál heimsálfunnar. Rússar vilja gera umfangsmiklar breytingar á því hvernig haldið er á spöðunum varðandi öryggismál og segja að það hafi ekki dugað til að halda friðinn.
Vladimir Medinsky, sem leiddi rússnesku sendinefndina í Abu Dhabi, sagði til að mynda í vikunni að átökin í Úkraínu, sem hófust þegar Rússar gerðu innrás í landið, sýndu að núverandi fyrirkomulag virkaði ekki sem skyldi.
Rússnesku erindrekarnir eru sagðir hafa farið fram á það að NATO hyrfi frá Austur-Evrópu, sem er í samræmi við kröfur Rússa fyrir innrásina í Úkraínu.
Sjá einnig: Sagðir krefjast þess enn að NATO hörfi frá Austur-Evrópu
Þýski miðillinn Bild sagði frá því í dag að erindrekarnir hefðu ekki krafist þess að öllum áðurnefndum ríkjum Austur-Evrópu yrði vísað úr NATO. Þess í stað hefðu þeir talað um Eystrasaltsríkin og Finnland, sem deila landamærum með Rússlandi.
Antti Häkkänen, varnarmálaráðherra Finnlands, sagði við blaðamenn í dag að Rússar vissu fullvel að aðild landsins að NATO væri ekki til umræðu. Hann sagði að ef það hefði í alvörunni verið lagt fram væri það svívirðilegt og engin leið til að eiga í viðræðum.
Enn fremur sagði hann Rússa reyna að sjá hversu langt þeir gætu leitt Evrópu og Bandaríkin í takt við óskir þeirra. Rússar myndu láta reyna á samheldni í Evrópu og í Bandaríkjunum eins lengi og látið væri eftir þeim.
Elina Valtonen, utanríkisráðherra, vildi ekki tala með beinum hætti um frétt Bild en sagði að það kæmi henni alls ekki á óvart ef Rússar hefðu og myndu leggja slíkar kröfur fram. Þá sagði hún það að Rússar væru að krefjast aukinna krafna í garð Evrópu sýna fram á að þeir hefðu ekki raunverulegan áhuga á að koma á friði.
Friðurinn þurfi að koma fyrst
Kaja Kalla, sem heldur utan um utanríkismál Evrópusambandsins, sagði í dag að tal um heildaröryggismál í Evrópu væri gildra. Rússar hefðu ekkert látið af kröfum sínum og sagði hún að ráðamenn í Evrópu ættu að gera það sama.
Fyrst þurfi að semja um vopnahlé og frið, áður en byrja eigi að ræða eitthvað annað við Rússa.
Focussing on Russia's demands on Europe’s security architecture risks shifting attention away from a ceasefire and walking into Moscow’s trap. While Russia keeps to its maximum demands, we should stick to our own. We have prepared these with EU Foreign Ministers. Europeans have to be present at talks, not just to attend, but to influence the outcome. My remarks at the informal European Council in Dublin ↓
— Kaja Kallas (@kajakallas) November 13, 2026
Ráðamönnum í Evrópu hefur þó gengið illa að komast að samkomulagi um það hver á að taka að sér að ræða við Pútín og félaga fyrir hönd heimsálfunnar. Vonast er til þess að þeir komist að samkomulagi um það á leiðtogafundi á Írlandi um helgina, samkvæmt frétt Politico.