Kærunefnd útlendingamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa Albana úr landi og gera honum að sæta 12 ára endurkomubanni. Úrskurðurinn hefur vakið mikla athygli þar sem Albaninn myrti mann í heimalandi sínu árið 2004 og er grunaður um að hafa brotið gegn barni á Íslandi.Þingmaður Miðflokksins, Snorri Másson, er sleginn yfir úrskurðinum og spyr á Facebook hvað þurfi til að koma svo hægt sé að vísa afbrotamönnum úr landi: „Hvað þarf maður eiginlega að gera af sér hérna til að vera vísað úr landi? Þetta er greinilega ekki nóg.“
Snorri með áleitna spurningu um „lygilegt“ mál morðingja og meints barnaníðings - Er svarið að finna hér?