Kærunefnd húsamála hefur fallist, að hluta til, á kröfu fyrirtækis sem er eigandi íbúðar í miðborg Reykjavíkur um að fyrrum leigjandi íbúðarinnar greiði því bætur. Leigjandinn flutti úr íbúðinni og rifti leigusamningi einhliða á grundvelli þessi að íbúðin væri óíbúðarhæf og heilsuspillandi meðal annars vegna myglu. Nefndin segir þó að það sé ósannað að ástand íbúðarinnar hafi verið með þeim hætti.Fyrirtækið og leigjandinn gerðu með sér ótímabundinn leigusamning í janúar 2022.
Tókst ekki að sanna að íbúðin í miðbænum væri mygluð og þarf að greiða bætur