Frumvarp til breytinga á raforkulögum á að taka á innviðaskuld í flutnings- og dreifikerfi raforku, segir umhverfis- orku- og loftslagsráðherra. Einfalda á leyfisferli, lækka upphafskostnað virkjana og einfalda ferli við eignarnám lands.
Frumvarpið er í samráðsgátt stjórnvalda. Stofnanir og almenningur hafa tvær vikur til að koma athugasemdum sínum við frumvarpið á framfæri.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir gríðarlega innviðaskuld í flutnings- og dreifikerfi raforku. „Og það bitnar harðast á dreifðum byggðum á viðkvæmum kerfissvæðum þar sem raforka er af skornum skammti,“ segir Jóhann.
Vestfirðingar fagni skrefum til bóta fyrir raforkukerfið
Í drögum að frumvarpi til breytinga á raforkulögum sem nú er í samráðsgátt leggur ráðherra til breytingar sem eiga að flýta fyrir uppbyggingu raforkuinnviða. Drögin gera ráð fyrir að hægt verði að vinna umhverfismat samhliða vinnu við að sækja um virkjunarleyfi. Í dag þarf samþykkt umhverfismat að liggja fyrir til að hægt sé að sækja um slíkt leyfi.
Í frumvarpinu birtast margar þær breytingar sem ráðherra hefur boðað á síðustu misserum. Hann kynnti hugmyndir um lækkað kerfisframlag á Orkuþingi á Vestfjörðum fyrr í sumar.
Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu, segir öll skref til bóta fyrir raforkukerfið fyrir vestan góð. „Hins vegar erum við aðeins að óttast að orðalagið hvað varðar tengigjöld og flutningskerfi raforku, gangi ekki alveg nægilega langt,“ segir Sigríður.
Kerfisframlag gæti lækkað úr sjö milljörðum
Nýjar virkjanir borga í dag Landsneti allan kostnað við raflínur sem tengjast landskerfinu. Hann er mishár eftir staðsetningu. Við Hvalá á Ströndum hyggst Vesturverk virkja en verðmiðinn á tengingunni er 6-7 milljarðar.
Hinsvegar verður tenging virkjunarinnar við orkukerfið til þess að efla flutningskerfið á svæðinu og auka áfallaþol. Verði af virkjuninni er ekki jafn brýnt að tvöfalda Vestfjarðalínu á næstu árum.
Jóhannn Páll segir lækkun kerfisframlagsins ekki snúast um að gefa afslátt, heldur að leikreglurnar séu sanngjarnar.
Kostnaðurinn við að tengjast kerfinu byggist á fjarlægð virkjana frá þeim innviðum sem eru til staðar.
Segir ekki hróflað við eignaréttinum
Jóhann Páll segir leitast eftir að jafnvægi í frumvarpinu þegar kemur að því að einfalda ferla um eignarnám á landi fyrir raflínur. „Eignarrétturinn er varinn samkvæmt stjórnarskrá og stjórnvöld þurfa að gæta að rannsóknarreglunni, meðalhófi og sýna tillit fólki sem þykir vænt um landið sitt og ásýnd þess.“
Jóhann Páll segir ferlið verða hraðvirkara, eignarnámsmál fái flýtimeðferð fyrir dómstólum og sex mánaða frestur sé til að láta reyna á ákvarðanir um eignarnám. Ekki sé með þessu hróflað við stjórnarskrárvörðum eignar réttindum.
Vilja raunverulegt samráð, ekki tilkynningu um orðinn hlut
Landeigendur í Borgarfirði annars vegar og Norðurlandi vestra hins vegar hafa stofnað hagsmunasamtök vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Holtavörðuheiðarlínur 1 og 3. Eiríkur Blöndal, bóndi á Jaðri í Bæjarsveit í Borgarfirði segir nauðsynlegt að samráð sé raunverulegt. „Að það sé ekki verið að tilkynna mönnum um einhvern orðinn hlut og enginn hafa neitt um það að segja.“
Hann bendir á aðstöðumun stórfyrirtækja á borð við Landsnet og bænda. Skipulagsferlið feli í sér að kynna sér hundruð ef ekki þúsundir blaðsíðna af gögnum. Þá hafi Landsnet umtalsvert meira aðgengi að verk- og lögfræðingum.
Lögfræðingur kostar okkur svona um það bil afurðina eftir eina kind á klukkustund, eða eitt tonn af byggi,“ segir Eiríkur, sem sjálfur ræktar korn á sínu landi.
Eru almannahagsmunir að veði?
Ráðherra segir ágreining, jafnvel um stutta spotta á langri línuleið geta tafið mikilvægar framkvæmdir um mörg ár.
„Það eru slíkir almannahagsmunir undir að það er ekki ásættanlegt í mínum huga að dómsmál og ágreiningur geti frestað framkvæmdum í mörg mörg ár.“
„Í raun forðast ráðherrann að taka á aðalatriðinu,“ segir Eiríkur. „Það er að ræða inn í Alþingi hvort það séu forsendur fyrir eignarnámi í svona tilvikum þar sem verið er að flytja orku frá einni stóriðju til annarrar stjóriðju.“