Serbneskur karlmaður, sem er eftirlýstur á Írlandi vegna meintrar nauðgunar og ítrekaðs ofbeldis árið 2004, situr í gæsluvarðhaldi hér á landi til 1. desember á meðan krafa írskra yfirvalda um afhendingu hans er til meðferðar. Hann hefur dvalið hér frá árinu 2017 og samkvæmt lögreglu dvaldi hann og starfaði hér á fölsuðu króatísku vegabréfi.
Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá landamæradeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í frétt RÚV að maðurinn hafi árið 2017 blekkt Þjóðskrá til að fá íslenska kennitölu út á fölsuð króatísk skilríki. Króatía er í EES en Serbía ekki. Að sögn Jóhanns vann maðurinn hér með hléum, missti vinnuna á einhverjum tímapunkti og virðist svo hafa farið í veikindaleyfi og fengið greiðslur úr opinberum sjóðum sem Króati, sem hann átti ekki rétt á. „Þannig hann er búinn að blekkja kerfið hérna í dágóðan tíma,“ segir Jóhann Karl.
Eftirlýsingin fannst hjá Interpol
Samkvæmt Jóhanni var maðurinn stöðvaður við landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli í lok október. Þar framvísaði hann serbneskum skilríkjum, grunur vaknaði um að hann væri kominn til að vinna ólöglega og til stóð að vísa honum úr landi. Þá kom í ljós að hann var skráður sem Króati í kerfum lögreglunnar.
Honum var sleppt og gert að sæta tilkynningarskyldu. Þegar hann mætti á lögreglustöð voru teknar af honum ljósmynd og fingraför og við uppflettingu hjá Interpol fannst eftirlýsingin frá Írlandi. Jóhann segir að vegna þess að maðurinn hafði breytt nafni sínu í Serbíu og fengið ný ferðaskilríki hafi landamæra- og lögreglukerfi ekki flaggað handtökuskipuninni.
Jóhann segir manninn fyrst hafa komið til Íslands árið 2016. Í úrskurði héraðsdóms, sem Landsréttur staðfesti, kemur hins vegar fram að maðurinn hafi sjálfur sagt lögreglu að hann hefði fyrst komið hingað árið 2006 en dvalið hér frá 2017.
Mætti ekki fyrir dóm árið 2007
Landsréttur staðfesti 5. nóvember úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 3. nóvember um gæsluvarðhaldið (mál nr. 881/2026). Þar kemur fram að manninum sé gefið að sök að hafa nauðgað konu og beitt hana ítrekuðu ofbeldi á Írlandi 27. til 28. maí 2004. Brotin geta varðað ævilöngu fangelsi samkvæmt írskum lögum.
Samkvæmt úrskurðinum yfirgaf maðurinn Írland skömmu eftir að honum var sleppt úr haldi lögreglu árið 2004. Hann var handtekinn á ný árið 2007 og ákærður, en látinn laus gegn tryggingu og skilyrðum, meðal annars um að afhenda ferðaskilríki sín. Hann mætti ekki fyrir dóm 10. október 2007.
Írskur dómari gaf út handtökuskipun á hendur honum 10. desember 2007 og evrópska handtökuskipunin sem barst íslenskum yfirvöldum er dagsett 24. september 2014. Írsk yfirvöld hafa staðfest að hún sé enn í gildi. Erlend yfirvöld hafa staðfest að maðurinn breytti nafni sínu árið 2012 og andlitssamanburður og fingraför staðfestu að hann væri sá sem lýst var eftir.
Við skýrslutöku 3. nóvember kannaðist maðurinn við sakamálið á Írlandi og staðfesti að upplýsingarnar í handtökuskipuninni ættu við hann, en neitaði sök. Hann sagðist hafa breytt nafni sínu vegna erfðamála og mótmælti afhendingu til Írlands. Hann krafðist þess fyrir Landsrétti að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi, til vara að hann sætti farbanni og til þrautavara að gæsluvarðhaldinu yrði markaður skemmri tími.
„Reglulega að koma upp“
Jón Þór Karlsson, lögregluþjónn hjá landamæradeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir við Vísi að lögreglan búist frekar við því að maðurinn verði framseldur, en að mál hans hér á landi séu einnig til skoðunar.
Hann segir mál af þessu tagi ekki einsdæmi. „Því miður er þetta dálítið að poppa upp hjá okkur, að þriðjaríkisborgarar séu hér í ólögmætri dvöl og hafi þá komið inn á fölskum forsendum sem EES-borgarar og unnið, jafnvel þegið bætur og verið hér í alls konar starfsemi. Því miður, þetta er reglulega að koma upp.“