Þetta herma upplýsingar frá lögreglu. Í öðru máli var einstaklingur kærður fyrir líkamsárás og hnífaburð. Þá var annar kærður vegna gabbs fyrir brot á lögum um samræmda neyðarsvörun og að stunda tilhæfulaus símtöl í neyðarnúmer lögreglu.
Fimm eru vistaðir í fangageymslum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en ekki eru veittar frekari upplýsingar um málin. Þar segir að einstaklingar hafi sömuleiðis verið kærðir í dag fyrir brot á lögum um útlendinga og fyrir að starfa og ráða í störf án atvinnuleyfis.
Þá var tilkynnt um umferðarslys þar sem bifreið er sögð hafa skemmst eftir að ökumaður ók á vegrið. Bifreiðin var dregin af vettvangi og ökumaður fluttur á slysadeild.
Annar ökumaður var handtekinn fyrir fíkniefnaakstur en sá reyndist jafnframt vera án ökuréttinda, að sögn lögreglu. Sömuleiðis voru skráningarmerki fjarlægð af fjölda bifreiða þar sem eigendur höfðu vanrækt að greiða af þeim tryggingar. Þá var ökumaður kærður fyrir að hafa ekki ökuskírteini meðferðis.
Fréttin hefur verið uppfærð með frekari upplýsingum frá lögreglu.