Fjölmiðlanefnd segir lögin skýr um að hlaðvörp geti talist fjölmiðlar og fallið undir skráningarskyldu. Þetta kemur fram í bréfi sem nefndin sendi Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, 28. október og birti á vef sínum í gær. Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling, hafnar því í svari við spurningum Nútímans að skrá hlaðvarpið hjá nefndinni.
Í bréfinu, sem fjallar um eftirlit nefndarinnar með hlaðvörpum og öðrum skráðum fjölmiðlum, segir að miklar umræður hafi skapast um starfsemi hennar, einkum um skráningarskyldu hlaðvarpa og túlkun á lögum um fjölmiðla nr. 38/2011. Nefndin telur lögin skýr hvað eðli hlaðvarpa varðar. Þau geti fallið undir gildissvið laganna og talist til fjölmiðla, enda séu lögin tæknióháð. Að sögn nefndarinnar hafa íslenskir dómstólar tvívegis staðfest þessa túlkun.
Uppfylli hlaðvörp hugtaksskilyrði laganna séu þau skráningarskyld líkt og aðrar tegundir fjölmiðlunar. Í 22. tölulið 1. mgr. 2. gr. laganna sé að finna skilgreiningu á hugtakinu hlaðvarp og fjölmiðlar sem falli undir lögin skuli skrá starfsemi sína samkvæmt 14. gr., meðal annars með upplýsingum um ábyrgðarmann, fyrirsvarsmann, dagskrárstefnu og eignarhald. Nefndin undirstrikar að framkvæmd og túlkun við skráningu fjölmiðla, þar á meðal hlaðvarpa, sé að hennar mati í fullu samræmi við gildandi lög og lögskýringargögn.
Nefndin segist jafnframt hafa séð ýmis ummæli ráðherra í fjölmiðlum að undanförnu sem gefi tilefni til að vekja athygli á reglugerðarheimild í 1. mgr. 62. gr. laganna. Þar segir að ráðherra geti með reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd laganna í heild eða einstaka kafla þeirra, og í b-lið ákvæðisins er tekið fram að í reglugerð megi útfæra nánar tilhögun skráningar fjölmiðlaveitu. Að mati nefndarinnar má nýta þá heimild til að skýra fyrirkomulag skráningar hlaðvarpa, líkt og annarra miðla. Áður en slík reglugerð er sett skal þó afla tillagna Fjölmiðlanefndar, samkvæmt 2. mgr. sömu greinar, og nefndin segist myndu fagna því að koma að slíku verki.
Samkvæmt Heimildinni hefur Logi lýst efasemdum um núverandi fyrirkomulag og boðað endurskoðun fjölmiðlalaga. Þar kemur jafnframt fram að áform séu um að leggja fram frumvarp til breytinga á lögunum í mars á næsta ári.
Deilan um skráningu hlaðvarpa er ekki ný af nálinni. Fjölmiðlanefnd ákvað 26. ágúst að sekta Þórarin um 500 þúsund krónur fyrir að sinna ekki skráningarskyldu vegna Einnar pælingar, eins og Nútíminn hefur áður greint frá.
Bergþór vill leggja Fjölmiðlanefnd niður – „Ríkið á ekki að vera ritstjóri“
Hvetur ráðherra til að setja reglugerð
Nútíminn spurði Þórarin hvort hann ætlaði að skrá Eina pælingu hjá nefndinni, og ef ekki, hvers vegna. Hann hafnar skráningunni og fullyrðir meðal annars að nálgun nefndarinnar sé öfug við nálgun sambærilegra nefnda á Norðurlöndunum:
„Nei, ég get ekki skráð Eina pælingu sem fjölmiðil því þrátt fyrir rúma túlkun fjölmiðlanefndar á lögunum er þetta öfugt við sambærilegar nefndir á Norðurlöndunum og er algerlega fjarstæðukennt þegar öllu er á botninn hvolft. Hlaðvörp eru bara viðbót í flóru afþreyingar og það að ætla að skilgreina þau sem fjölmiðla gerir lítið úr því mikilvæga starfi sem fjölmiðlar sinna í síerfiðara umhverfi. Það væri betur farið hjá þessari annars óþarfa nefnd að einbeita sér að því að bæta umhverfi fjölmiðla.“
Hann var einnig spurður hvað hann vildi að Logi Einarsson gerði nú þegar svar nefndarinnar liggur fyrir:
„Nú í þessu sérkennilega útspili fjölmiðlanefndar segir að Logi Már geti skilgreint lögin betur með reglugerð. Þetta er það sem við lögðum til á fundi okkar við ráðherra en þar var okkur hjá SÁÁ(f) (Samtök áhugafólks um ábyrga fjölmiðlun) tjáð að það myndi duga skammt. Því vil ég hvetja ráðherra til að koma fram með reglugerð sem skikkar fjölmiðlanefnd til þess að stöðva sinn linnulausa og tilhæfulausa ofstopagang.“