Það er samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins sem hafnar tillögunni en fundargerð nefndarinnar var tekin fyrir á fundi borgarráðs í dag.
Ásamt því að vísa til bágrar fjárhagsstöðu sveitarfélaga er einnig nefnd til sögunnar ákvörðun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá 19. október að ráðast ekki í framkvæmdir á skíðasvæðunum á næsta ári.
Snjóframleiðsla hefði að mati formanns nefndarinnar létt á fjölsóttustu brekkunum og bætt aðstöðu skíðafélaganna. Sveitarfélögin sem eiga skíðasvæðin áttu síðan að skipta kostnaðinum á milli sín.