Meindýravarnir Norðurlands vinna hörðum höndum við að verja þorpið í Hrísey fyrir ágangi músa sem virðast hafa fundið bólstað í eyjunni undanfarin tvö til þrjú ár. Settar hafa verið upp rúmlega 50 gildrur. Í hverri gildru er eitur sem músin sækir í.
Ólafur Pálmi Agnarsson, meindýraeyðir, segir markmiðið að verja þorpið en ólíklegt þykir að takist að útrýma öllum músum í eynni:
„Við þurfum að halda þorpinu hreinu svo þær séu ekki að koma inn og skemma hluti,“ segir Ólafur.
Þjóðsagan um galdramanninn og skammrifið
Mýs höfðu ekki sést í Hrísey síðan 1650 þar til nýverið. Þá var brugðið á það ráð að fá galdramann til þess að útrýma músunum, Þorvald Rögnvaldsson frá Sauðanesi. Þjóðsagan segir að hann hafi látið grafa holu nyrst í eyjunni og síðan tekið stórt skammrif úr sauð og dregið það á eftir sér. Allar mýsnar í eyjunni eltu Þorvald og rifið. Þegar að holunni var komið þá henti hann skammrifinu ofan í og mýsnar fylgdu í kjölfarið. Þá var mokað yfir holuna og mýs sáust ekki síðan.
Lausaganga katta bönnuð
Fyrir um þrjátíu árum var mikið um rottur í Hrísey. Þá kom meindýraeyðir og tókst með miklu átaki að útrýma þeim. Að sögn Ólafs er auðveldara að útrýma rottunum þar sem þær sækja í kjöt og aðra fæðu sem er auðvelt að eitra með. Mýsnar hins vegar þurfi ekki mikið til að lifa af og geti verið skammt frá holunni sinni í lengri tíma og lifað.
Aðspurður segir Ólafur að það að flytja ketti til Hríseyjar myndi engu breyta. Þrír kettir séu fyrir í eynni en lausaganga katta er bönnuð til þess að verja fuglalífið:
„Þeir myndu ekki útrýma músunum. Það eru ekkert allir kettir sem nenna að veiða.“