Bæjarstjórn Grindavíkur hefur lýst yfir vantrausti á vinnubrögð og framgöngu félagsins gagnvart Grindvíkingum og skorar á stjórnendur þess að endurskoða áætlunina í samráði við íbúa.
Þórkatla keypti upp fasteignir Grindvíkinga eftir að eldsumbrot hófust á Reykjanesskaga fyrir hönd ríkisins og kynnti félagið sérstaka endurkaupaáætlun á þriðjudag. Býðst Grindvíkingum ýmist að kaupa íbúðir sínar til baka með þriggja ára skilarétti, fá eign sína frátekna út árið 2027 eða leigja fjölbýli á markaðskjörum.
Mikil óánægja hefur verið með áætlunina og hafa Grindvíkingar meðal annars gagnrýnt að eignir verði seldar aftur á sama verði og þær voru keyptar af íbúum. Röksemdin þar er að kaupverðið hafi byggt á brunabótamati sem var gert áður en náttúruhamfarirnar hófust þegar aðstæður voru gjörólíkar í Grindavík.
Íbúar lýstu yfir vantrausti
Töluverður hiti var á kynningarfundi Þórkötlu í gær þar sem endurkaupaáætlunin var kynnt fyrir Grindvíkingum. Íbúar sögðust ekki treysta félaginu og gagnrýndu ákvarðanir þess harðlega. Þá líkti einn fundargestur samskiptum félagsins og Grindvíkinga við stríð.
Fjárhagsleg áhætta var ofarlega í huga hjá mörgum auk þess sem margir tóku fram að það myndi reynast erfitt að kaupa fasteign í Grindavík á meðan verið væri að greiða fyrir fasteignir annars staðar á sama tíma. Þá vöknuðu spurningar um stimpilgjöld, tryggingar, búslóðir og lán viðskiptabanka.
Á einum tímapunkti bað einn fundargestur alla þá sem treystu ekki stjórnendum Þórkötlu um að standa upp. Virtust þá allir gestir í salnum rísa úr sætum sínum.
Til stóð að halda næstu kynningarfundi fyrir Grindvíkinga 17. og 19. nóvember en þeim hefur nú verið frestað.
Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu, segir að markmið fundarins í gær hafi meðal annars verið að fá viðbrögð frá Grindvíkingum og gefa þeim sem ekki höfðu tekið þátt í því samráði sem hafi þegar átt sér stað rými til þess að tjá sig.
„Umræður voru góðar og bárust margar athugasemdir við endurkaupaáætlunina. [Af] þeim sökum hefur Þórkatla ákveðið að fresta frekari kynningarfundum sem fara áttu fram þriðjudaginn 17. nóvember og fimmtudaginn 19. nóvember næstkomandi. Þórkatla mun nú yfirfara þær ábendingar og sjónarmið sem komu fram á fundinum 11. nóvember og mun skipuleggja frekari fundi þegar því starfi er lokið,“ segir í Örn í skriflegu svari til fréttastofu en hann gaf ekki kost á viðtali í dag.