Fjallað var um ákall Guðmundar Karls Karlssonar, sérfræðings í netöryggi hjá Defend Iceland, um að hækka netöryggisstig í hádegisfréttum Bylgjunnar. Defend Iceland hefur þróað gervigreindarhakkara sem líkir eftir hegðun gervigreindarerindreka sem búnir eru til með illt í huga. Það var gert til að upplýsa notendur íslenskra tölvukerfa um veikleika.
„Við vitum ekki alltaf hvar þessir veikleikar eru og þeir geta sýnt sig á svo marga vegu. Það er saga sem að ég heyrði frá hárgreiðslustofunni minni. Þá voru þeir að setja vef í loftið og það var hægt að bóka tíma. Þetta var eitthvað sem þeir bjuggu til með gervigreind, alveg frábært og sniðugt og sparar pening. En þeir föttuðu ekki að það er hægt að bóka líka tíma 17. júní þannig að það mætti einhver alveg brjálaður,“ segir Guðmundur sem fór ítarlegar í málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
Nú þegar hafi þeir fundið hundruð veikleika sem auðvelt sé að laga svo lengi sem notandinn viti af þeim.
„Mjög mikið af þessu eru léleg lykilorð, veik lykilorð og ekki verið að nota tvíþátta auðkenningu,“ segir hann.
„Það sem ég myndi vilja að hinn meðaljón taki út úr þessu núna er að kveikja á tvíþættri auðkenningu alls staðar og ekki nota einu sinni þjónustu sem býður ekki upp á það því að það er bara veikleikamerki hjá viðkomandi aðila.“
Einföld lykilorð hafi áhrif á heilu fyrirtækin
Það þurfi ekki mikið til þess að komast yfir heilu fyrirtækin.
„Þessi eini starfsmaður sem er með lykilorðið sumar2025, hann verður tekinn. Þá er komist inn á hans reikning og er hann nýttur til þess að færa sig áfram inn í fyrirtækið. Svona er þetta að gerast trekk í trekk og er hvað algengast af þessu alvarlega sem við erum að sjá,“ segir Guðmundur.
Sem dæmi nefnir hann atvik í Frakklandi og víðar þar sem kælar voru hitaðir upp í allt að fimmtíu gráður svo að matvæli skemmdust.
„Þetta eru svona stjórntæki sem eru sett út á netið og það er ekkert pælt í því og þarna eru veik lykilorð undir og það er það sem gerðist í Frakklandi. Þetta voru lykilorð sem tengdust dagsetningu dagsins eða eitthvað svoleiðis. Þannig að þessir óprúttnu aðilar, hverjir sem þeir voru, löbbuðu þarna inn og bara hækkuðu hitastig í kælunum,“ segir hann.
Komust yfir myndavélar í bílum
Hvað varðar öryggi inni á heimilinu leiðbeinir Guðmundur fólki að fikta ekki í netbeininum (e. router) nema til þess að breyta lykilorðunum og bæta þau. Ætli fólk sér að fara að opna netbeininn þurfi að setja upp tvíþætta auðkenningu og gera fleiri öryggisráðstafanir.
„Fólk er að opna port út á netið á netbeininum heima hjá sér og það á ekki að gera það, alls ekki. Sérstaklega ekki ef það veit ekki hvað það er að gera,“ segir hann.
Til að mynda ef myndavél er sett á eins konar port sem opnast á vef er oft auðvelt að hakka sig þar inn og hafa því aðgang að myndavélinni.
„Sumar eru bara galopnar og það sorglega við svona öryggisrannsóknir er að þegar maður finnur þetta veit maður ekki hvernig maður á að láta vita. Ég get ekki rakið neinn sem er með myndavél á netinu, ég get ekki látið hann vita. Ég sé bara að þarna er skjáskot úr stofunni hjá einhverjum og það er ekkert hægt að gera.“
Einnig liggi það fyrir að ákveðinn framleiðandi sem býr til myndavélar fyrir bíla hafi haft aðgang að myndavélunum í öllum bílunum í gegnum ákveðinn portal. Tölvuþrjótar hafi komist þar inn og þar með haft aðgang að hundruðum þúsunda myndavéla í bílum.
Hærra viðbúnaðarstig
Líkt og kom fram í hádegisfréttum kallar Guðmundur eftir aukinni fjárfestingu í netöryggismálum og hærra viðbúnaðarstigi.
„Fyrst og fremst þarf að styðja við þau fyrirtæki, félög og stofnanir og annað sem hafa ekki endilega burði til þess að sjá um þessi mál sjálf. Þau hafa varla burði til þess að uppfæra vefina hjá sér, hvað þá að sjá til þess að þeir séu öruggir yfir höfuð,“ segir hann.
„Þannig að ég vil bara fá þessa umræðu og fá fólk til að hugsa. Þótt það væri ekki bara nema að athuga hvort uppfærslurnar séu í lagi.“