Þetta kemur fram í tilkynningu frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Engir eftirskjálftar hafa mælst og engar tilkynningar borist Veðurstofu um að skjálftinn hafi fundist í byggð.
Slíkir skjálftar séu algengir í Bárðarbungu.
Síðast varð skjálfti í Bárðarbungu af þessari stærð þann 10. nóvember. Hann mældist 4,5 að stærð. Skjálftar líkt og þessir hafa mælst reglulega síðustu misseri og tengjast kvikusöfnun í Bárðarbungu eftir Holuhraunsgosið 2014 til 2015.