GTA 6 er ekki leikur fyrir börn, segir Haukur Brynjarsson, sérfræðingur hjá Netvís, Netöryggismiðstöð Íslands. Hann segir að leikurinn innihaldi mikið ofbeldi og því sé mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir um innihaldið.
„Hann fær þessa 18 ára aldursmerkingu og það er ekki að ástæðulausu, þetta eru aðeins meira en slagsmál, þetta er gróft ofbeldi, gróft kynferðislegt efni, fíkniefnaneysla og slíkt.“
Netvís stóð fyrir fræðslufundi fyrir foreldra um leikinn í kvöld og segir Haukur leikinn frábrugðinn öðrum tölvuleikjum að mörgu leyti.
„Fyrir utan gríðarlegar vinsældir þá er búið að leggja mikið í framleiðsluna, hann er mjög raunverulegur og hann er aðeins meira en bara einhver pixlaleikur.“
Spilarar leiksins hafa töluvert frelsi í leiknum sem er frábrugðið mörgum öðrum tölvuleikjum, þá er spilaranum gert kleift að gera í raun hvað sem honum sýnist.
„Það er auðvitað spennandi fyrir suma en vekur upp ákveðnar spurningar líka.“
Haukur segir að foreldrar þurfi að kynna sér leikinn vel og eins þurfi þeir að vera meðvitaðir um að þó svo að leikurinn sé ekki í eign barnanna geti birst efni úr honum á netinu.
„Umhverfi þeirra er þannig í dag að þau rekast á efni úr leiknum annars staðar. Þó að við bönnum börnum að spila leikinn þá þýðir það ekki að hann hverfi úr umhverfi þeirra og við þurfum að vera tilbúin í þessi samtöl sem koma upp.“