Í úrskurði nefndarinnar kemur fram að nefndinni hafi þann 3. september síðastliðinn borist kæra frá húsfélagi Suðurgötu 15 vegna þess sem húsfélagið kallaði óhæfilegan drátt Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á afgreiðslu erinda vegna kvartana um hávaða frá Tjarnarbíói. Vísaði húsfélagið til þess að það hefði sent heilbrigðiseftirlitinu tölvupóst 21. og 24. apríl vegna hávaðans.
„Í erindunum var m.a. farið fram á að opnað yrði formlegt eftirlitsmál, að framkvæmdar yrðu hljóðmælingar í íbúðum að Suðurgötu 15 og að ástand hljóðbúnaðar yrði skoðað. Þá fór kærandi fram á að Heilbrigðiseftirlitið tæki formlega ákvörðun um úrbætur og að viðeigandi þvingunarúrræðum yrði beitt,“ segir í úrskurðinum.
Fram kemur að starfsmaður heilbrigðiseftirlitsins hafi sent Tjarnarbíói tölvupóst vegna málsins 27. apríl. Þar hafi hann óskað upplýsinga um það hvort aflað væri gagna um hljóðstyrk á sýningum og hvaða sýningar hefðu verið í húsinu 17. og 21. apríl.
„Hinn sama dag var upplýst af hálfu rekstraraðila Tjarnarbíós að hljóðstyrkur í húsinu væri mældur og að þess væri gætt að hann færi ekki yfir leyfileg mörk. Þó hefðu mistök verið gerð 17. síðastliðins mánaðar þegar hljóð hafi verið spiluð í röngum hátölurum, þ.e. utan sals, í stutta stund.“
Farið yfir málið þegar starfsfólk kæmi úr sumarfríi
Segir í úrskurðinum að 15. maí hafi heilbrigðiseftirlitinu aftur borist tölvupóstur frá nágrönnum bíósins þar sem þess var krafist að brugðist yrði við og óskað upplýsinga um hvað ætti að gera vegna málsins. Þremur dögum síðar 18. maí hafi starfsmaður eftirlitsins aftur óskað eftir beiðnum um gögn um mælingar á hljóðstyrk frá Tjarnarbíói og óskað eftir viðburðardagskrá og þá upplýst nágrannana um málið.
Tjarnarbíó hafi svo þann 3. júní 2026 sent viðburðardagskrá til Heilbrigðiseftirlitsins og tveimur dögum síðan „öll gögn og þær úrbætur sem orðið hafi hér í húsi tengt mælingum og hljóðmælingarbúnaði.“ Mánuði síðar hafi nágranninn ítrekað erindi sín og óskað eftir formlegri afstöðu Heilbrigðiseftirlitsins og upplýsinga um stöðu málsins og hvenær vænta mætt niðurstöðu.
Með tölvupósti 17. júlí hafi Heilbrigðiseftirlitið upplýst nágrannann að gögn hefðu borist frá rekstraraðilum Tjarnarbíós og að farið yrði yfir þau þegar starfsfólk sem hefði reynslu af slíkum málum kæmi til baka úr sumarleyfi. Þá var að auki upplýst að hljóðmælingar hefðu ekki farið fram í ljósi þess að engir viðburðir hefðu verið á dagskrá sem þættu líklegir til að valda ónæði.
Nágranninn óskaði aftur eftir upplýsingum um málið rúmum mánuði síðar 26. ágúst og hvenær hljóðmælingar voru fyrirhugaðar. Ítrekaði hann fyrirspurnina með tölvupósti 1., 3. og 14. september. Heilbrigðiseftirlitið hafi þá óskað eftir frekari gögnum frá Tjarnarbíó 7. september þar sem óskað var eftir niðurstöðum hljóðstigsvöktunar frá síðustu fjórum sýningum í sal Tjarnarbíós. 14. september hafi nágrannanum verið upplýstur um að yfirferð á gögnum frá Tjarnarbíó væri lokið. Gögnin bentu til þess að gerðar hefðu verið úrbætur á húsnæði Tjarnarbíós sem draga ætti úr ónæði. Þá var upplýst að óskað hefði verið eftir niðurstöðum hljóðstigsvöktunar frá rekstraraðilanum og að skipulagðar yrðu hljóðmælingar þegar þær mælingar hefðu borist.
Kvartað hafi verið yfir hávaða um árabil
Nágranninn segir í viðbótarathugasemdum sínum að hann telji engar forsendur fyrir frávísun kærunnar þó ekki liggi fyrir endanleg ákvörðun í málinu. Hann segir að málið eigi sér langa sögu, kvartað hafi verið undan hávaða frá Tjarnarbíói allt frá árinu 2010. Því verði að skoða málið með tilliti til forsögu þess og taka rökstudda afstöðu til þess hvort núverandi varnir séu fullnægjandi.
„Meta þurfi sérstaklega hvort Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafi nýtt heimildir sínar til rannsóknar málsins án óþarfa tafa. Jafnframt hafi Heilbrigðiseftirlitið ekki veitt skýr svör við fyrirspurnum kæranda, svo sem varðandi búnað til að stilla hljóð eða hvenær ákvörðunar í málinu sé að vænta, sbr. 9. gr. stjórnsýslulaga. Þá hafi stjórnvaldið ekki upplýst um hvaða eftirlitsaðgerðir eða önnur úrræði hafi verið metin eða beitt til að afla nauðsynlegra upplýsinga.“
Segir úrskurðarnefndin að líta þurfi til þess að stjórnvöldum beri að sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Fyrir liggi að þegar erindi nágrannans var tekið fyrir hafi verið óskað eftir gögnum frá rekstraraðila Tjarnarbíós.
„Þá hefur komið fram af hálfu Heilbrigðiseftirlitsins að yfirferð á gögnum hafi tafist sökum sumarleyfa en henni sé nú lokið. Hefur stjórnvaldið vísað til þess að fullnægjandi gögn hefðu ekki borist, m.a. niðurstöður hljóðstigsvöktunar í sal Tjarnarbíós. Eftir að kæra í málinu barst úrskurðarnefndinni óskaði stjórnvaldið eftir frekari gögnum frá rekstraraðilum og var kærandi jafnframt upplýstur um þá beiðni. Eins og atvikum er háttað í máli þessu verður ekki séð að óhæfilegur dráttur hafi orðið á afgreiðslu erindi kæranda, sem enn er til meðferðar hjá Heilbrigðiseftirlitinu.“