Kynferðisbrot gegn börnum er brotaflokkur sem er fyrir nokkru mættur á tækniöld. Kveiksþáttur gærkvöldsins sem fjallaði um barnaníðinga sýndi svo ekki verður um villst að símtækin geta verið vopn sem barnaníðingar á Íslandi og úti í heimi nota til að nálgast börnin okkar.
María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur í tæknirétti og stafrænu kynferðisofbeldi, segir að seinustu fimm ár hafi orðið verulegar breytingar á því hvernig fólk umgengst tækni heilt yfir. Þá sé ýmis stafræn tækni á borð við gervigreind notuð meira, eins hafi á undaförnum árum skapast gríðarleg eftirspurn eftir efni, bæði sé það efni af börnum og fullorðnum.
„Þessi þróun er alþjóðleg og við sjáum það í tölum frá Europol og Interpol en hún er líka á Íslandi og við sjáum það líka í tölunum okkar.“
Ráðist í ýmsar mótvægisaðgerðir
Á Íslandi hefur þó verið ráðist í ýmiss konar mótvægisaðgerðir til þess að bæta forvarnir og fræðslu segir Berglind.
„Það eru til dæmis samfélagslöggurnar sem eru núna í samstarfi við þá sem búa til kennslugögn til þess að fræða bæði kennara, börn og almenning.“
Eins hafi verið gerðar töluverðar úrbætur á því hvernig tekist er á við stafræn kynferðisbrot hjá lögreglu. María segir að þrátt fyrir bætt úrræði sjáist það svart á hvítu að enn þurfi meira til. Enn sé settur mikill þrýstingur á börn á samfélagsmiðlum.
„Það er ekki tilviljun að það sé verið að tala um það að börn eigi ekki að vera með sína eigin samfélagsmiðlareikninga fyrir 13 ára, það er í lögum.“
Beiti kunnum aðferðum til þess að vinna sér inn traust barna
Þrátt fyrir að enn séu mörg börn undir lögaldri á samfélagsmiðlum hefur náðst árangur á undanförnum árum. Þá segir María að samvinna milli stjórnvalda og almennings sé lykilbreyta í forvarnar- og fræðslustarfi.
„Það skiptir öllu máli að missa ekki varðstöðuna vegna þess að brotamenn finna alltaf nýjar leiðir, það er ekkert nema nýsköpun í glæpastarfsemi.“
Stafræn kynferðisbrot eru alþjóðleg og því ekki aðeins framin af Íslendingum á Íslandi heldur geta óprúttnir aðilar sett sig í samband við börn á netinu hvar sem er. María segir að þeir sem fremji brotin hafi meðal annars fengið þjálfun hjá skipulögðum brotasamtökum um hvernig sækja eigi að börnum.
„Þeir beita bara kunnum aðferðum til þess að veikja traust þeirra og fá þau svo til þess að senda sér efni.“
Bráðasta hættan sem skapast á netinu skapast í raunheimum
María segir að bráðasta hættan sem skapist í netheimum skapist í raunheimum, þá séu þau börn sem eigi erfitt félagslega líklegri til þess að vera útsettari fyrir ofbeldi á netinu.
„Krakkar sem glíma við einmanaleika, eiga erfitt með að eignast vini eða eru með námsörðugleika eru berskjaldaðri vegna þess að þau eru með lægri varnir þegar þau fara í stafræn samskipti því þau vilja bara svo rosalega eignast vini.“
Ekki ráð að skipta út uppeldi fyrir eftirlit
Bestu varnirnar gegn kynferðisbrotum á netinu gerast heima fyrir segir María. Hún segir að þó að mikilvægt sé að fylgjast með börnum á netinu þá sé það ekki ráð að skipta út uppeldi fyrir eftirlit.
„Það er rosalega auðvelt að fara í það að: „Ég fylgist með öllu því sem barnið mitt gerir, ég er með það á 360, ég fylgist með öllu.“ Þetta er eftirlit, ekki uppeldi.“
Foreldrar þurfi því að eiga í virkum samtölum við sín börn og byggja upp traust, komi eitthvað upp á geti börn því alltaf leitað til foreldra sinna.
Hægt er að nálgast viðtalið við Maríu í heild sinni hér fyrir neðan.