Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, hætti í dag í hagræðingarhópi Reykjavíkurborgar þar sem hann sagði reynslu sína af hópnum hafa valdið vonbrigðum. Hann sé ósammála mörgum ákvörðunum hagræðingarhópsins og að allt of mikill hraði hafi einkennt vinnuna.
Einar segir að þrátt fyrir að andlitið hafi ekki dottið af honum við fregnirnar hafi hann bundið vonir við það að nýr oddviti Samfylkingarinnar myndi efna loforð sitt til kjósenda um boðaðar breytingar.
„En þegar reynir á getur Samfylkingin einfaldlega ekki horfst í augu við að kerfið sem hún bjó til hefur vaxið sér yfir höfuð. Þetta vita kjósendur enda kusu þeir flokka sem töluðu fyrir breytingum,“ skrifar Einar í færslu á Facebook.
„Varðandi þátttöku Péturs í hópnum þá fannst mér hann yfirleitt leggja gott til. Hann getur þó auðvitað ekki stutt aðgerðirnar af pólitískum ástæðum.“
Einar segir að stefna Samfylkingarinnar sé þannig að flokkurinn geri ekki ráð fyrir öðru en að „þeirra eigin óráðsía“ verði fjármögnuð með skatttekjum og hallarekstri borgarinnar. Hinir sem starfa að hagræðingunum og sitja eftir munu halda vinnunni áfram og vanda sig við að gera borgina betri.