Í gær, þremur árum upp á dag eftir að Grindvíkingum var gert að yfirgefa heimili sín vegna jarðhræringa og eldgosa, var kynnt sérstök endurkaupaáætlun. Með henni hafa Grindvíkingar þrjár leiðir til þess að flytja aftur í bæinn, sú fyrsta er að kaupa eignina aftur með kaupleigu, önnur leiðin er að taka eignina frá út árið 2027 og sú þriðja er leiga fjölbýlis á markaðskjörum.
Einnig fylgir þriggja ára skilaréttur fyrir þá sem kaupa eignir á meðan enn ríkir óvissa vegna eldsumbrotanna.
Þórkatla stóð fyrir upplýsingafundi í Grindavík sem hófst klukkan fimm. Honum lauk rétt eftir klukkan hálf átta. Þegar fundarstjóri reyndi að ljúka honum um klukkan sjö var honum mótmælt harðlega.
Viljið þið vera hérna fram á nótt?
„Já,“ svöruðu Grindvíkingarnir sem sóttu fundinn einum rómi.
Kröfðust þess að nafnið yrði tekið út
Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu, hóf fundinn og kynnti áætlunina í þaula. Að kynningunni lokinni var opnað fyrir spurningar og það setti tóninn strax þegar fulltrúi Járngerðar, hagsmunasamtaka Grindvíkinga, hóf málið.
„Ég vil árétta eitt fyrir hönd stjórnar Járngerðar. Við sátum í húsnæðishópi á vegum forsætisráðuneytisins og Þórkötlu. Í síðustu viku sendum við formlegt bréf þar sem við óskuðum eftir því að nafn félagsins yrði ekki birt í tengslum við þessa endurkaupaáætlun,“ sagði fulltrúinn.
Það væri þar sem stjórnin teldi að takmarkað væri á þau hlustað. Þau harmi að nafnið hafi síðan komið fram í kynningu framkvæmdastjórans.
„Við krefjumst þess að nafn félagsins verði tekið úr öllu kynningarefni Þórkötlu hér eftir,“ lauk fulltrúinn ræðunni á og uppskar lófaklapp úr salnum.
Þegar Örn tók til máls baðst hann afsökunar á því að efnið væri notað.
„Það var engin sérstök ástæða til að draga félagið til samábyrgðar í þessu verkefni,“ sagði hann.
Ekkert traust
Spurningarnar voru margar og fjölbreyttar. Þær vörðuðu flestar sértæk vandamál og ábendingar sem íbúarnir höfðu varðandi áætlunina. Sömuleiðis ítrekuðu þeir hversu lítið traust þeir bera til Þórkötlu. Einn mælendanna sagðist hafa verið spurður hvort hann væri „búinn að vinna stríðið“.
„Við treystum ykkur ekki,“ sagði einn sem talaði og bætti við að Þórkötlu hefði tekist að sameina bæinn gegn þeim.
„Ég treysti ykkur ekki til þess að selja húsnæðið á brunaútsölu þegar forgangskaupunum lýkur,“ sagði annar.
Á einum tímapunkti voru allir sem eru ósammála og treysta Þórkötlu ekki að standa upp og stóðu allir áhorfendurnir upp.
Fjárhagsleg áhætta var ofarlega í huga hjá mörgum auk þess sem margir tóku fram að það myndi reynast erfitt að kaupa fasteign í Grindavík á meðan þau væru að greiða fyrir fasteignir annars staðar líka. Þá vöknuðu spurningar eins og um stimpilgjöld, tryggingar, búslóðir og lán viðskiptabanka.
„Við erum ekki að fara að setja eignir í Grindavík á brunaútsölu,“ var meðal svara Ernis.
Einnig var óánægja með að þeir sem ætluðu ekki að leigja eða kaupa þyrftu að vera farnir út 1. febrúar. Til að mynda væri það afar óhentugt fyrir skólastarf, sem hófst á ný nú í haust, og andrúmsloftið í bænum sem væri hvað best á vorin. Ítrekað var kallað eftir því að dagsetningunni yrði frestað.
Hægt verður að horfa á fundinn í fullri lengd þegar honum er lokið.
Fengið jákvæð viðbrögð annars staðar
Íbúarnir spurðu þá ítrekað hvort fundurinn væri til þess að breyta samningnum eða hvort hann væri meitlaður í stein.
„Svörin eru þau að við heyrum hvað hér er sagt og munum að sjálfsögðu fara yfir það,“ svaraði Örn.
„Við þurfum að eiga þá umræðu hjá okkur hvað það er og skoða hvað hægt er að gera. Við erum að kynna upplegg sem við töldum vera mjög frambærilegt, með góðum kjörum og litlum skuldbindingum. Við höfum kynnt þetta víðar en hjá Grindvíkingum og við höfum fengið jákvæð viðbrögð víðast hvar.“
Við þessi orð voru þó nokkur köll úr salnum og hljómaði fólk hneykslað.
„Við höfum kynnt þetta fyrir öðrum aðilum, til dæmis í stjórnkerfinu og kröfuhöfum félagsins. En við heyrum hvað hér er sagt og þurfum að vinna að því.“
Örn sagði einnig að verið væri að reyna að vinna málið í sem mestri sátt við Grindvíkinga.
„Heyrist þér það?“ var kallað úr salnum.
„Ég verð að viðurkenna að viðbrögðin eru með öðrum hætti en ég átti von á.“
Einnig var hann spurður af hverju starfsfólk Þórkötlu var sent á fundinn en ekki stjórnin sjálf. Þegar Örn svaraði og tók fram að öll stjórnin væri erlendis sprungu flestir í salnum úr hlátri.
Starfsmaður geymdi hjólhýsi
Eitt af málunum sem var spurt út í varðaði hjólhýsi í eigu starfsmanns Þórkötlu sem var verið að geyma í bílskúr í Grindavík. Miðað við spurningar og svörin á fundinum voru íbúar upplýstir um þetta og slegið á fingur starfsmannsins sem virðist hafa nýtt sér tóman bílskúr í eigin þágu.
Aðspurður á fundinum sagði Örn að honum þyki málið afar leitt.
„Þetta er ekki eins og við höfum lagt upp með og höfum farið yfir málið með viðkomandi.“