Sérfræðingarnir starfa hjá Reykjavíkurborg, Kópavogi, Hafnarfirði og Seltjarnarnesi en þeir vilja að fuglarnir verði aðeins fóðraðir við sérstakar aðstæður og nefna sem dæmi þegar snjór eða ís aftrar því að þeir komist í æti.
Í minnisblaði þeirra, sem tekið var fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar í dag, kemur fram að Dýravaktin hafi talið þörf á allt að fjörutíu kílóum af fóðri á dag við Reykjavíkurtjörn en Dýraþjónusta Reykjavíkur hefur gefið þrjú til tíu kíló á völdum dögum í mestu frosthörkunum.
Umhverfis- og skipulagsráð ákvað eftir að hafa fjallað um minnisblaðið að óska eftir samstarfi við Dýravaktina um fóðrun þegar þörf krefur.
Í fyrra samþykkti umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnarfjarðar að tvöfalda styrk til fóðrunar á veturna í 200 þúsund krónur á ári.