Kerfi sem á að tryggja öryggi barna gagnvart dæmdum kynferðisbrotamönnum virkar ekki, að mati dósents við lagadeild HR.
Erfitt er fyrir stjórnendur skóla og íþróttafélaga að fá upplýsingar um sakavottorð þeirra sem vinna með börnum.
Í öllu skólastarfi, íþrótta- og æskulýðsstarfi með börnum er forsvarsmönnum skylt að afla upplýsinga, bæði um starfsfólk og sjálfboðaliða, um hvort þeir hafi verið dæmdir fyrir kynferðisbrot einhvern tímann á ævinni.
Óskilvirkt og hægvirkt kerfi sem tryggir ekki öryggi barna
Það getur tekið langan tíma fyrir stjórnendur að fá afhentar upplýsingar úr sakavottorðum þeirra sem vilja starfa með börnum.
Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við HR, segir það leiða til þess að öryggi barna, í skóla, íþrótta- og æskulýðsstarfi, sé ekki alltaf tryggt.
Viðfangsefni Kveiks í gærkvöld var kynferðisbrot gegn börnum.
Svala segir að mikilvægt sé að þau lagalegu úrræði sem eru til staðar, til verndar börnum, séu skilvirk.
„Og nýtt þannig að þær kröfur sem lagðar eru á stjórnendur og fyrirsvarsmenn í þessum geirum að þeir sinni því. Og það sé brugðist við því að hálfu yfirvalda.“
Svala segir að afgreiðsla á beiðnum um sakavottorð hafi verið of hæg og óskilvirk til þess að hægt sé að segja að öryggi barna sé tryggt með fullnægjandi hætti.
„Á þessu hefur verið, það hefur verið pottur brotinn þarna.“
Skiluðu skýrslu með tillögum til úrbóta árið 2020
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þáverandi dómsmálaráðherra, skipaði nefnd, eftir baráttu Metoo-hreyfingarinnar, sem fékk það verkefni að bæta þarna úr.
Nefndin afhenti ráðuneytinu skýrslu, með tillögum til úrbóta, árið 2020.
Svala segir að fyrirkomulagið sé þó enn það sama nú og var þá.
„Það er engin sjálfvirkni eða möguleiki fyrir einstaka starfsstaði, eða félög, til að leita þessara upplýsinga sjálf á neinn hátt. Eins og bara til að fá upplýsingar um það hvort viðkomandi hafi hreint sakavottorð eða ekki.“
Svala segir mikilvægt fyrir stjórnendur skóla, íþrótta- og æskulýðsstarfs barna að fá aðgang að upplýsingum þar sem komi strax í ljós hvort fólk hafi hreina sakaskrá eða ekki.
Þá segir hún mikilvægt að tryggja skilvirkni og hraða afgreiðslu slíkra mála því oft þurfi að hafa hraðar hendur, til dæmis í kringum stór íþróttamót eða skólaferðalög.
Engin sameiginleg skrá milli landa fyrir erlenda starfsmenn
Sjálfboðaliðar, meðal annars úr hópi foreldra, fylgja börnum reglulega í ferðalög á vegum skóla, íþrótta- og æskulýðsstarfs.
Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að sjaldnast sé óskað eftir sakavottorðum þeirra.
Svala segir það einnig vandasamt hvernig taka skuli á málum erlendra starfsmanna sem komi til landsins til að vinna innan íþróttahreyfingarinnar. Engin sameiginleg skrá, milli landa, sé til yfir sakaskrár einstaklinga.
„Það þarf líka að tryggja að þar sé ekki á ferðinni fólk sem hefur mögulega gerst sekt um brot af þessu tagi.“
Að mati Svölu er mikilvægt að stjórnvöld leiti leiða til að tryggja að upplýsingar um sakaskrár erlendra starfsmanna séu með einhverjum hætti aðgengilegar.
Svala segir mikilvægt að stjórnvöld gefist ekki upp í baráttunni gegn kynferðisbrotum gegn börnum.
„Það er mikilvægt að minna sig á hvað við höfum gert, hvað við erum að gera og hvað við getum gert.“