Níu grunnskólar tóku þátt á þriðja undankvöldi hæfileikakeppninnar en það voru Austurbæjarskóli, Fellaskóli, Hagaskóli, Háteigsskóli, Hólabrekkuskóli, Ingunnarskóli, Klébergsskóli, Norðlingaskóli og Ölduselsskóli.
„Í úrslit komust Hlíðaskóli og Norðlingaskóli. Atriði Hlíðaskóla, Heimsendir, fjallar um að tjá sig áður en það er of seint og að það er í lagi að vera hræddur. Atriði Norðlingaskóla, Frjálsari í gær, fjallar um sviptingu á réttindum kvenna og er samið til heiðurs konum um víðan heim sem börðust fyrir réttindum kvenna,“ segir í tilkynningu.
Nú þegar hafa Árbæjarskóli, Langholtsskóli, Breiðholtsskóli og Klébergsskóli tryggt sér sæti í úrslitunum sem fara fram mánudaginn næstkomandi, 16. nóvember. Skrekkur er hæfileikakeppni grunnskólanema í Reykjavík.