Á myndskeiði sem fréttastofa CNN birti má sjá Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, með Jennifer eiginkonu sinni og starfsmönnunum Ricky Buria, Patrick Weaver og Tami Radabaugh stilla sér upp fyrir framan Gröfina til að taka ljósmynd. Það má heyra hvernig þau tala saman og hlæja. Það var þá sem vörðurinn við gröfina tók til máls.
„Allir gestir skulu ávallt viðhalda þögn og virðingu,“ hrópaði varðmaðurinn á hópinn.
Hegseth og föruneyti hans var á svæðinu til að vera viðstödd athöfn sem Donald Trump Bandaríkjaforseti og JD Vance varaforseti sóttu einnig.
Gröf óþekkta hermannsins er einn helgasti stríðsminnisvarði Bandaríkjanna um þá hermenn sem létust í fyrri heimsstyrjöldinni og stendur í Arlington National-kirkjugarðinum. Vörður úr þriðju fótgönguliðsherdeildinni stendur ætíð vörð og hefur reglan verið sú frá árinu 1948. Hinir ýmsu embættismenn, bandarískir og erlendir, hafa heimsótt gröfina til að votta hermönnunum virðingu sína.
Það er talið afar eftirsóknarvert að standa vörð um gröfina. Hver vörður þarf að gangast undir þjálfun sem tekur frá sex til níu mánuði en nær allir ná ekki að ljúka þjálfuninni. Frá árinu 1958 hafa um 735 fengið að gegna hlutverkinu.
Hegseth slapp rétt svo frá ákæru sem Thomas Massie, þingmaður Repúblikana, lagði fyrir fulltrúadeild þingsins. Ákæran varðaði meint embættisbrot Hegseth og sneru flestir ákæruliðirnir að stríðsrekstri í Íran.
211 greiddu atkvæði gegn ákærunum og 204 með. Málið fer nú til nefndar og er talið ólíklegt að það verði tekið fyrir á þessu þingi.