Stjórn Nvidia, eins stærsta tæknifyrirtækis heims, hyggst steypa forstjóra og stofnanda fyrirtækisins af stóli. Huang er flæktur í njósnahneyksli sem gæti skekið gervigreindariðnaðinn en hann er talinn hafa haldið framhjá eiginkonu sinni til 40 ára með kínverskum njósnara.
Samkvæmt heimildarmönnumWall Street Journal gæti stjórn Nividia komið saman strax í dag til þess að taka ákvörðun um framhald Huang innan fyrirtækisins.
Huang hefur viðurkennt að hafa átt í ástarsambandi við Alice Huang, fyrrverandi stjórnanda hjá tæknifyrirtækinu Megaspeed. Bandarísk yfirvöld gruna hana um að hafa miðlað upplýsingum til kínverskra stjórnvalda.
Stjórn Nvidia tilkynnti á sunnudag að hafin yrði sjálfstæð rannsókn á því hvort Huang hefði orðið fyrir barðinu á erlendum njósnara. Fyrirtækið sagði þó að ekkert benti til þess að viðkvæmum upplýsingum fyrirtækisins eða þjóðaröryggi Bandaríkjanna hefði verið stefnt í hættu.
Nvidia er enn eitt verðmætasta fyrirtæki í heimi enda er það leiðandi í framleiðslu örgjörva til notkunar í þróun gervigreindar. Því varð töluverður skjálfti í tækniheiminum þegar fréttir bárust af því að Huang hefði mögulega verið skotmark kínverskra njósnara, og ekki síður þegar hann viðurkenndi framhjáhald.