Fljótlega eftir að gröftur hófst fannst Koah Sharp sem hafði naumlega náð að halda lífi eftir að hafa verið grafinn lifandi í hundabúri sem vafið var inn í handklæði, að sögn lögreglu.
„Hann öskraði af öllum lífs og sálar kröftum, sem er gott merki í heimi ungbarna, myndi ég halda,“ sagði Jay Koon, lögreglustjóri Lexington-sýslu, á blaðamannafundi í gær en AP-fréttaveitan greinir frá.
Michael Comer, 25 ára gamall faðir barnsins, var handtekinn og er í haldi lögreglu ákærður fyrir innbrot. Líklegt er að hann verði ákærður fyrir fleiri brot, að sögn lögreglu.
Teppið líklega bjargað honum
Handklæðið myndaði líklega loftrými sem gerði drengnum kleift að anda inni í búrinu, sagði lögreglustjórinn. Þá kann svalt hitastig einnig að hafa hjálpað.
Koah var fluttur á sjúkrahús eftir að hann fannst á mánudag.
„Okkur líður betur núna þegar við vitum að Koah er óhultur,“ sagði Amber Hammond, ömmusystir hans, við AP. Hún fylgdist með því þegar honum var bjargað úr búrinu.
Lögreglumenn sem leituðu á heimili afans komu að opnum dyrum og barnaleikföngum en sáu hvorki föðurinn né barnið. Hófst þá gröfturinn.
„Þetta var grunnt,“ sagði Koon lögreglustjóri. „Ég hugsa að þegar búrið var komið í jörðina hafi líklega verið að minnsta kosti um 30 sentímetrar frá toppi búrsins upp að yfirborði jarðar.“
Eftirlitsmyndband sýndi föðurinn en ekki son hans
Yfirvöld segja að drengurinn hafi verið í umsjá föðurömmu sinnar. Hún hafi þurft að sinna ótilgreindu erindi og skilið hann eftir hjá föður sínum. Einhver annar hafi þá verið á leiðinni þangað til að sjá um barnið.
„Þegar umönnunaraðilinn kom var Michael farinn og Koah farinn með honum,“ sagði lögreglustjórinn á blaðamannafundi.
Eftirlitsmyndbönd frá nokkrum fyrirtækjum á svæðinu sýndu Comer án sonar síns síðdegis á mánudag, að sögn lögreglu. Faðirinn fannst á mánudagskvöld og var þá handtekinn.
Lögreglustjórinn sagði að foreldrar Koah hefðu átt aðild að heimilisofbeldismálum. „Börn lenda stundum á milli,“ bætti hann við.
Viljað fara með hann í annað ríki
Hammond sagði að faðirinn, sem er systursonur hennar, hefði rætt það að fara með barnið til New York vegna þess að hann vildi ekki vera í sama ríki og barnsmóðirin. Þegar Koah hvarf gerðu hún og aðrir ráð fyrir að Comer hefði látið einhvern annan fá drenginn.
„Okkur óraði alls ekki fyrir að eitthvað þessu líkt myndi gerast,“ sagði Hammond.
Comer var dæmdur til skilorðsbundinnar refsingar í október eftir að hafa játað sök vegna ákæru um heimilisofbeldi og alvarlegt brot gegn allsherjarreglu í tengslum við handtöku í júlí, að sögn AP-fréttaveitunnar. Þá féllu saksóknarar frá ákæru vegna skotvopns í tengslum við samkomulag sem fól í sér játningu hans. Áður hafði hann varið yfir tveimur mánuðum í fangelsi.