Einn er látinn og tíu særðir, þar af fjórir lífshættulega, eftir að þriggja hæða bygging hrundi í Brooklyn í New York-borg fyrr í kvöld.
Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs hafa nokkrir verið dregnir úr rústunum, þar á meðal barn sem borið var í burtu á börum.
Slökkvilið borgarinnar segir að enn þá sé verið að leita að fólki og Zohran Mamdani, borgarstjóri New York-borgar, hefur hvatt fólk til að halda sig fjarri slysstaðnum. Byggingin hrundi yfir nærliggjandi byggingarsvæði en ekki er vitað hver orsökin er.